Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

smeppi
smeppi Notandi frá fornöld 39 ára karlmaður
1.038 stig Hefur áhuga á: Klingonum
indoubitably

Re: #! CrunchBang Linux

í Linux fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Það eru engir stjórnendur, ég hugsa að það sé málið

Re: MacBook Pro eða Dell inspiron???

í Windows fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Windows forrit virka að jafnaði ekki í Macca. Hins vegar eru til fullt af Mac útgáfum á Windows forritum sem eru þá búin til í þeim tilgangi að virka fyrir Mac. Til að mynda Office pakkinn sem þú talar um. Einnig eru til fullt af forritum sem eru open source og virka oftast á öll stýrikerfi, t.d. VLC eða Firefox. Maccinn er betri. En hann er líka dýrari og fágætari, sem þýðir að þú gætir lent í því til dæmis að geta ekki notað prentarann í skólanum þínum vegna þess að admininn er latur...

Re: bílpróf

í Tilveran fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Vá lærið að lesa áður en þið rífið kjaft. Þetta eru tillögur í dragi að frumvarpi. Það á eftir að semja frumvarpið, rífast um það og samþykkja það. Þú þarna sem færð bílprófið eftir 8 daga, fylgstu með fréttum svona einu sinni og þá kannski fattarðu að svín fljúga áður en frumvörp verða að lögum á svona stuttum tíma.

Re: Fjarlægja fæðingarbletti

í Tilveran fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Ég veit ekki hvernig þetta er með svona slétta gæja, en ég lét taka einn svona útstæðan og ógeðslegan einhvern tíman, þá var læknirinn byrjaður að skera, kom auga á annan og spurði hvort hann ætti ekki bara að kippa honum af líka fyrst hann væri byrjaður. Þannig ég hugsa að það sé ekki kannski talið per blett. En þetta varð eitthvað rétt yfir 5000 kalli + 1500 held ég, fyrir að senda þá í skoðun að tékka á krabbameini.

Re: Dauðinn - endir?

í Heimspeki fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Sókrates var amk bara nokkuð sáttur þegar sófistarnir dæmdu hann til dauða. Hann var alveg harður á því að líkami okkar væri ekkert annað en hylki þar sem sálin væri geymd. Þannig næði enginn maður fullum skilning fyrr en hann væri laus við líkamann, sem heftir sálina niður. Aristóteles kom líka fram með kenningu sem hefur stundum verið kölluð tilvistarleg sönnun á Guði. Báðar mjög vinsælar kenningar, þar til þessir nútímaheimspekingar fóru að tala um að það væri enginn tilgangur með þessu,...

Re: URR.

í Tilveran fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Þegiðu bara sjálf og prófaðu að vera ekki svona pirruð? Þú ert nú bara heppin að hafa einhverja vinnu, svo skammastu þín fyrir að vera að væla yfir henni. Að deala við fólk (óákveðið eður ei) er hreinlega partur af þinni vinnu og það er best fyrir þig að sætta þig bara við það!

Re: WILLY WONKA!

í Tilveran fyrir 16 árum, 11 mánuðum
haha, þessi var helvíti góður :)

Re: Paint.NET

í Tilveran fyrir 16 árum, 11 mánuðum
True, en það er þrátt fyrir það alveg rosalega gimpað :D

Re: Bilprofshaekkuna doteri

í Tilveran fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Já hugsa að þetta sé nú ekki útpældasta pælingin. Það sem ungum bílstjórum vantar helst er reynslan af því að keyra bíl í umferðinni, og það þarf nú engan prófessor til að sjá að hún fæst ekki með því að fresta henni. Betra væri að lengja eða auka fjölda ökutímanna sem þarf til þess að fá ökuréttindi, en það er þó ekki heldur nein galdralausn. Reynslan sjálf sem vantar, er sú þegar ábyrgðin er á manni einum sjálfum, þ.e. þegar ökukennarinn er farinn.

Re: ég þoli ekki

í Tilveran fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Ég hef einnig leitt hugann að þessu tiltekna “vandamáli” og þetta virðist stafa af því sem ég kýs að kalla hnitmiðuð athyglissýki, þ.e. athyglissýki sem beint er að sérstakri manneskju og/eða ákveðnum hópi. Ef það kemur þér ekki við er manneskjan (yfirleitt) annað hvort ekki skotin í þér, eða þú ert ekki inní kúl hringnum hennar á tilteknum tíma.

Re: URR.

í Tilveran fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Fólk, sem þolir ekki fólk, eða skilur ekki hversu einstaklega áhugavert annað fólk getur verið (i.e. eru ekki húmanistar) á hreinlega ekki að vinna í þjónustustörfum. Góða farðu bara á sjó og hættu þessu væli! Á öðrum nótum, ertu ekki á tímakaupi? Hvaða andskotans máli skiptir það þig ef fólk er lengi að panta?

Re: Líma saman vídeóskrár?

í Linux fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Já ég googlaði aðeins í gærkvöldi og fann út það sama. Fann þó líka út að vandinn virðist liggja í avi formattinu, þar sem þetta virðist ekki eiga við mpeg skrár. Gætir þannig farið þá leið að converta í mpeg og síðan catta þetta saman. Þó það sé eflaust talsvert auðveldara að nota mencoder eða avimerge :)

Re: Líma saman vídeóskrár?

í Linux fyrir 16 árum, 11 mánuðum
man cat kannski :P Þetta á að vera hægt. Eða ég gerði þetta allavega einhvern tíman með textaskrár. Kannski er vídjóforritið að plata, búinn að tékka á því?

Re: Semi mikilvægt - iPod vandamál

í Tilveran fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Ekki vanmeta núbba… Alveg hreint ótrúlegt hvað þeim dettur í hug. Eða hvað þeim dettur ekki í hug er kannski betur við hæfi.

Re: ótti við þjáningu.

í Tilveran fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Ég er á þeirri skoðun að einungis klaufar meiði sig. Ég get verið soddan klaufi, en ég óttast það held ég ekkert, þó ég hafi nú ekkert sérstaklega gaman af því heldur… Bætt við 14. júlí 2009 - 00:29 Samt pæling með þetta að fórna sér fyrir manneskjuna sem maður elskar. Ef við snúum þessu við og segjum að manneskjan sem ég elska fórni sér fyrir mig, þá þyrfti ég að lifa án hennar, sem ég gæti ýmindað mér að væri verra en dauði. Þetta er svona pæling já, en maður getur að sjálfsögðu ekkert...

Re: Spennitreyja

í Tilveran fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Vá þarft ekkert spennitreyju í það! Notaðu bara spliff, donk og gengju!

Re: Gömul kona - perri!

í Tilveran fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Heh, já ætli það sé ekki rétt hjá þér. Rugla þessu saman við smáorð eins og einsog og ofaní eða ofan í. Það má víst gera bæði held ég. Styttra að gera ekki bil hehe :)

Re: Gömul kona - perri!

í Tilveran fyrir 16 árum, 11 mánuðum
True dat. Batnandi mönnum er þó best að lifa, eins og stendur einhversstaðar.

Re: Vitiði hvað ég þoli ekki?

í Tilveran fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Kommúnismi er líkast til misskilnasta pólítíska hugtak veraldar. Marx var mun frekar heimspekilegur tilvistarfræðingur heldur en stjórnmálamaður.

Re: Starfsmannalisti visir.is

í Tilveran fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Líklega vegna þess að flestar fréttirnar frá þessari fréttastofu er annað hvort hrikalega illa unnar eða alls ekkert fréttaefni. Svört kómedía, ekki beint eitthvað sem maður springur úr hlátri yfir, bara svona heh :) fattaru.

Re: Gömul kona - perri!

í Tilveran fyrir 16 árum, 11 mánuðum
“Langt í frá” meikar ekkert sense. Betra væri að nota hina stöðluðu setningu “langt því frá”. :)

Re: Tilvitnanir

í Heimspeki fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Meinarðu ekki draumaríngl og útrásarfyrirtæki? Ég man ekki betur en að hetjan hafi endað með því að stjórna sínu eigin saltfisksfyrirtæki, en draumaprinsinn hafi.. nei ég man það nú bara ekki neitt..

Re: Splash - Logo keppni

í Grafísk hönnun fyrir 16 árum, 11 mánuðum
haha töff Flaskan líka nett.

Re: ééég hata ...

í Tilveran fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Ég tala alltaf bara íslensku við svona frönsku/þýsku/norsku/sænskumælandi blábjána :) Virkar alveg sem svona lúmskt face.. Fyrir mig amk..

Re: ráð við ælupest?

í Tilveran fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Morfín myndi klárlega laga verkinn.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok