-útlendinga sem að halda að ég kunni öll heimsins tungumál. Það virkar ekkert að tala við mig á þýsku, sænsku, dönsku, frönsku eða neinu svoleiðis sama hvað þið reynið ! ÉG SKIL YKKUR EKKI !

-vinnuna mína. ég er með heimþrá og mig langar heim.

-fólk sem að kann ekki að keyra. Ég hata ekkert meira en að keyra bíl því að helmingurinn af fólkinu hugsar um ekkert nema rassgatið á sér. meina halló STEFNULJÓSIÐ ER TIL ÞESS AÐ NOTA ÞAÐ og þú þarft ekki að taka þér klukkutíma til að hægja á og beyjga þessi litlu beygju þína. og á vegum þar sem er 90 km hámarkshraði þá nenni ég ekki að vera að dunda mér rokkandi upp og niður úr 70 uppí 80. Þetta skapar bara hættu og pirring.

- að vera veik. nýbúin að vera með eyrnabólgu, hálgsbolgu, kvef, hita og hausverk í 2 daga og stíflaða nefið vill ekki fara og ég fæ illt í brjóstkassann og eyrun þegar ég reyni að snýta mér.

- bakið á mér. Þetta er drasl.

- staðreyndina að ég sé ekki á eistnaflugi núna að vera pissfull að skemmta mér á afmælisdegi kærastans á meðan hann var næstum því búinn að deyja útaf nokkrum geitungastungum (ofnæmi) og ég hef áhyggjur.

- flugur ! SZDFGHKNBFV !! fokking ógeðslegu lífverur sem ættu ekki að vera til. AFHVERJU GETA ÞÆR BARA EKKI LÁTIÐ MANN Í´FRIÐI.

- “fuglasöng” eða frekar fuglaGARG á næturnar. Ég vil sofna ekki grenja úr mér augun afþví ég er andvaka og vil fara að sofa en get það ekki útaf þessu helvítis gargi.

- óþroskaða foreldra. eða meira bara foreldri. Það er alltaf sagt við yngra fólkið að við eigum að taka sambandsslitum eins og fullorðið fólk og vera þroskuð, en síðan geta fullorðnir ekki einu sinni tekið því á þroskaðann hátt og þurfa að láta eins og fábjánar. Barn sem aldrei þroskaðist.

- fokking ógeðslega ljóta bílinn minn. Það er allt að honum. Einu sinni elskaði ég hvað þetta er mikill “reddings-bíll” en núna hata ég það. Listi yfir flest sem er að honum: Skottið lokast ekki sama hvað ég hamra á því. Ég þarf að spenna upp bensínlokið með hníf, altinatorinn er bilaður þannig að bíllinn minn getur orðið rafmagnslaus hvenær sem er. HVENÆR sem er, jafnvel í keyrslu. Pústið hefur dottið af og ég hélt þú uppi með bandi sem var fast í skottið í nokkra mánuði og núna er eitthvað meira að honum því að þegar ég bakka þá kemur rosalega hávært og skrítið hljóð. SVo mengar hann of mikið. fokk. stundum ef ég stíg á bremsuna, þá slökknar á útvarpinu. geggjað OG til að toppa allt, þá er lakkið ónýtt og hann lýtur rosalega illa út.

- tilhugsunina að ég hef ekki gert neitt í sumar. Jú ein útileiga. Jeij, ég fékk frí í EINN laugardag til að fara að skemmta mér og var látin fá samviskubit yfir því alveg nokkra daga af yfirmanninum.


..búin í bili. Fokk hvað ég nenni ekki að vera til. mig langar í skólann.