Hér er líklega einhver misskilningur á ferðinni. Efni breytist ekki í orku þegar ljóshraða sé náð -það heldur áfram að vera efni, hvaða hraða sem það er á. Geimferjan Columbia leystist upp í andrúmsloftinu vegna hitans sem myndaðist við núning. Úti í geiminum er þrýstingur minni en 10^-7 millibör (minni einn tíu milljarðasti af þrýstingi við yfirborð Jarðar). Þar sem lítið efni er til staðar úti í geiminum er lítið viðnám og því engin þörf á hitaskildi. Raunveruleg vandamál eru hins vegar...