Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

skuggi85
skuggi85 Notandi frá fornöld 40 ára karlmaður
3.796 stig

Re: Glæponum gert hátt undir höfði...

í Deiglan fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Takk rosalega fyrir þetta innlegg. Vonandi hjálpar það fólki að hugsa út fyrir áróðurinn. Og já hætta að kenna unglingum um ölvun og vandræði.

Re: Þunnur og veðrið...

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ok takk fyrir upplýsingarnar :)

Re: Þunnur og veðrið...

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
En er hraðbraut ekki bara fyrir óvenju gáfaða einstaklinga? Ekki það að ég sé heimskur. En ég hef alltaf verið í kringum meðaltalið í námi.

Re: Konan sem þorði...

í Deiglan fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Nei en þú getur lesið um málið á http://www.haestirettur.is/ Nú vona ég að ég hafi aldrei nauðgað neinum óvart. En vanalega er það þannig að þegar einhver segir ekki nei, streitist ekki á móti og tottar mig að þá sé viðkomandi samþykkur. Það er nú sjaldan sem fólk segir orðrétt að þau séu samþykk kynlífinu þegar kemur að skyndikynnum. Nei þýðir nei. En er það núna orðið líka þannig að það er nauðgun ef að mennskjan segir ekki JÁ? Ef það er raunin þá eru nú tugir þúsunda nauðgara hérna á...

Re: Dauðinn sem oft var kallaður Svartur

í Sagnfræði fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Plágunnar var fyrst vart hér á Íslandi árið 1402 og lagði þá um 70% landsmanna af velli. Seinni plágan kom á Ísland árið 1494 og lagði þá um 40% landsmanna af velli. Það segir sig sjálft að ef við hefðum haft 3x fleira fólk til þess að taka þátt í þeirri miklu frjósemi sem varð seinna að þá værum við líklega í kringum milljónina.

Re: Sjálfhjálparbók um rómantík

í Rómantík fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Og vá hvað þær eiga margar eftir að falla fyrir þessu. En þú ert nú varla meiri herramaður en aðrir að falla fyrir þessum þrýstingi. Svo getur það endað þannig að einn daginn þegar þú ætlar að vera “herramaður” að þá móðgast daman. Sumar reyna að fá karlpeningin til þess að borga en margar sem fylgja nútíma hugsunarhætti myndu einfaldlega móðgast við það. En er ekki bara í lagi að konur hafi 15% lægri laun ef að allir eru herramenn og borga kostnaðinn t.d. í bíó? Ég held að þessi hefð sé...

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Þú skerðir rétt fyrirtækisins til þess að stunda eðlileg viðskipti og frelsi einstaklingsins til þess að fá aðgang að þessari vöru eftir því hvernig það hentar honum. Þó það sé mögulegt að fá þetta lyf þá er takmörkunin samt frelsisskerðing. Þarna er verið að setja vald í hendur annarra hvort ég megi kaupa lyfið eða ekki. Ef ég vil kaupa 100 parkódín pakka úti í næstu búð fyrir birgðir þá kemur það einfaldlega ekki öðrum við. Þetta eru viðskipti milli mín og fyrirtækisins um eigin neyslu sem...

Re: Þunnur og veðrið...

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Þetta er ekki nöldur.

Re: Dönsku hjálp? Einhver??

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Já meinar. Held að menntakerfið þurfi að fara að endurskoða þetta. Finnst ekkert vit í því að læra svona lítið tungumál. Held að þetta sé seinasta skrefið í sjálfstæðisbaráttunni að fella niður að hafa þetta sem almennt fag í grunnskólum. Finnst mikið meira vit í því að kenna t.d. kínversku, arabísku eða spænsku. Og auðvitað enskuna.

Re: fucking slúður

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Já já… En ef að vinur segir þér eitthvað slúður? Slúður sem hann er viss um að sé satt? Segir þú þá líka öðrum frá því? Það er nefnilega oft þannig að einhver er svo viss um að það sé satt og dreyfir því. Það gengur á milli fólks sem öll lýta á þetta sömu augum “þetta er góður vinur minn hann myndi ekki skálda svona”. Svo er slúður er líka slæmt þó það sé um sanna hluti. Sérstaklega ef það er um eitthvað persónulegt sem kemur öðrum bara ekkert við.

Re: fucking slúður

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Hefur þú aldrei tekið þátt í slúðri um aðra?

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég hef aldrei vitað af því að heróín brjótist inn og ræni. Held að manneskjur séu þær einu sem gera það. Alveg eins og bíll hefur aldrei drepið neinn, en ökumaður hefur drepið með bílinn sem verkfæri. Ég hef aldrei lent í neinum vandræðum með dópista. En það hefur oft komið fyrir að einhver undir áhrifum áfengis valdi mér vandræðum. Að búa með föður mínum í æsku sem er alki, var lifandi helvíti. Er það eðlilegt þegar 8 ára barn fagnar því að foreldranir séu að fara að skilja? Ég veit án efa...

Re: Dönsku hjálp? Einhver??

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Danska er leiðinleg. Velja annað tungumál?

Re: Sjálfhjálparbók um rómantík

í Rómantík fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Þessar gömlu hefðir eru bara þvílíkt rugl. Finnst ekkert sorglegra en konur sem sitja og bíða eftir að maðurinn geri eitthvað rómantískt á meðan þær gera það ekki sjálfar. Þær séu “prinsessur” sem maðurinn á að eltast við. Maðurinn á að sanna sig og heilla konuna upp úr skónum, ekki öfugt. Þær eru “verðlaun” sem hann verður að vinna fyrir. Nú á jafnréttistímum hlýtur að vera eðlilegt að þessi eltingaleikur breytist. Konur vilja fá sömu laun en samt finnst mörgum en þá sjálfsagt að...

Re: Þunnur og veðrið...

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Jú jú. Núna er þetta viðkvæmt málefni og ég ætla alls ekki að fara að alhæfa yfir alla í þessari stétt. En ég þekki nokkra homma sem hafa verið í byggingarvinnu og þeir segja allir það sama. Þeim myndi ekki detta í hug að láta vinnufélagana vita af því að þeir séu hommar. Þú finnur varla meira “macho” umhverfi en í slíkum iðnuðum sem eru ríkjandi af gagnkynhneigðum karlmönnum. Veit um eitt dæmi þar sem gaurinn var ekkert að leyna kynhneigð sinni og það endaði með því að hann var hrakinn...

Re: Konan sem þorði...

í Deiglan fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Þú hefur auðvitað rétt fyrir þér að þessu leiti að þetta er hneyksli hvernig var komið að þessu máli. En það sannar samt ekki að konunni hafi raunverulega verið nauðgað. Ég vil ekki hafa styttur af þessari “hetju” þegar það er svona óljóst hvort henni hafi verið nauðgað eða ekki.

Re: Baugsmálið...

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Já það eru auðvitað miklar ýkjur.

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Já ég skil. Þannig að þú styður að allt sem er ávanabindandi verði bannað?

Re: Konan sem þorði...

í Deiglan fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Þannig að allir eiga að vera dæmdir sekir af því þér finnst það vera svo ólíklegt? Dæmi… * Konan hefur verið í ýmsum átökum við manninn/mennina. Flestir vilja trúa konunni þegar kemur að nauðgunarkærum, góð leið til þess að skaða einhvern sem þér líkar illa við. Jafnvel þó að hann/þeir séu ekki dæmdir þá hefur þetta áhrif á líf þeirra það sem eftir er. Maður losnar ekki við það að hafa verið kærður fyrir nauðgun. Þó maður sé dæmdur saklaus þá hikar fólk við það að treysta þeim sem hafa verið...

Re: Konan sem þorði...

í Deiglan fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Sagði aldrei neitt slíkt. Voðalega er farið í kringum þetta hvernig þeir orða þetta. Þeir beinu lýsingar sem ég hef lesið er að maður tók hana hálstaki… Baðst svo afsökunar á því. Sagði henni svo seinna að fara úr fötunum. Hún segir ekki nei og fer eftir óskum þeirra. Er það þá nauðgun út af ofbeldinu sem átti sér stað áður? Sannar það án vafa að þeir ætluðu að nauðga henni? Nú eru ekki allir ofbeldismenn nauðgarar. Óháð því hvort þetta eigi að teljast sem nauðgun eða ekki þá samhryggist ég...

Re: Þunnur og veðrið...

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Var tóbak talið vera skaðlaust fyrir 20 árum? Nú er ég ekki með á hreinu hvenær þessar miklu breytingar urðu. En jafnvel bara fyrir 10-15 árum síðan hefði þessi hugmynd verið talin öfgafull. Reykingarmönnum fækkaði fyrst gífurlega með forvarnarstarfi og svo eftir að reykingarfólk var orðið minnihlutahópur þá loksins varð það mögulegt að koma slíkum öfgalögum í gegn. Enginn hefði líka trúað því í gamla daga að þetta myndi enda þannig að stjórnvöld myndu hækka eða lækka verð á matvörum eftir...

Re: Þunnur og veðrið...

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég er hommi.

Re: Konan sem þorði...

í Deiglan fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég bara því miður get ekki verið sammála því að það sé nóg að konan hafi verið trúverðleg. Ekki er æskilegt að svipta menn frelsi eingöngu vegna orða frá einum einstaklingi, sérstaklega þegar það er aðeins frá þeim sem kærir. Þá erum við búin að færa dómsvaldið yfir á lögregluna að vissu leiti. Ef mat lögreglunar á trúverðuleika geti verið nóg til þess að sakfella menn. Sérstalega í snúnum málum eins og þessu. Hvað ef að konan trúir því að henni hafi verið nauðgan en að það mat hennar sé...

Re: Konan sem þorði...

í Deiglan fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Sem þýðir hvað? Að menn eiga að vera dæmdir í 95% tilfella? Að finna út svona prósentutölu er ómögulegt. Á hverju er hún byggð? Til þess að geta búið til slíka tölu verður maður að vita sekt/sakleysi í öllum málum. Ég held að enginn geti haft slíka vitneskju nema geta lesið hugsanir. Eins og ég sagði, það er erfitt að sanna sekt í slíkum málum. Þetta er því miður kaldur raunveruleiki sem erfitt er að breyta. Og þegar samfélagið þrýstir á að fjölga fjölda þeirra sem eru dæmdir sekir þá getur...

Re: Baugsmálið...

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Það er mjög augljóst að blöðin eru búin að stilla sér upp á vissan hátt þegar kemur að þessu máli og bara Baugi almennt. Það er alveg augljóst að Fréttablaðið hallast að því að fjalla um málin Baugi í hag og öfugt hjá Morgunblaðinu. Það þýðir ekki endilega að starfsmenn hjá Fréttablaðinu séu að taka skipunum um það. En eðlilega hefur það viss áhrif bara sú vitneskja að fyrirtækið sem verið er að fjalla um eigi blaðið. Svo er ristjóri Morgunblaðsins vinur ýmsa sjálfstæðismanna, meðal annars...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok