Ég er búinn að vera með pirring í maganum í mörg ár hve íslendingar virðast gera íslenskum glæpamönnum erlendis hátt undir höfði.

Ég get byrjað á smá dæmisögu, ég var við nám í Bandaríkjunum fyrir nokkrum árum, sosum ekkert merkilegt við það, var á námslánum, yfirleitt alltaf hálf blankur eins og algengt er með námsmenn, þegar skyndilega ég sé í einu dagblaði (amerísku) grein um það að 2 íslendingar hafi verið teknir fyrir sterasmygl og settir í svokallað unglingafangelsi meðan málið væri í rannsókn. Þeir voru um tvítugt og ég hugsaði með mér að þeir hlytu að vera með baun í heilastað að reyna að smygla dópi inn til Florída, sem er eitt best vaktaða fylki bandaríkjana með tilliti til dóps. Ok, ekkert í raun merkilegt við þetta, nema, svo sé ég í Mogganum sem ég fékk sendan að Össur Skarphéðinsson þingmaður hafi farið til FLorída með föt og skó og fleira handa þessum “aumingja” mönnum… ekki datt þessum manni að koma með föt eða skó til mín!! og var ég nú að læra þarna til þess að koma með nýja vitneskju til Íslands,, ónei, þarna var ég núll og nix vegna þess að ég var löghlýðinn, meðan glæpamenn sem hafa litla sem enga meðaumkun á mínum bæ fá aðstoð, föt og örugglega peninga líka.

Nýjasta dæmið er þessi Aron Pálmi í Ameríku, hað er að íslendingum? hvað í andsk. kemur þessi maður okkur við? Ég kæri mig ekkert um að fá þennan dreng hingað til Íslands, hann hefur greinilega verið eitthvað veikur í höfðinu þegar hann framdi þann glæp sem hann er dæmdur fyrir, og það er öruggt mál að varla hefur hann batnað við að vera innilokaður og að miklu leyti einangraður í átta ár !!!

Það má vel vera að dómurinn yfir honum á sínum tíma hafi verið harður, það er ekki okkar að dæma um það, við vitum pottþétt ekki alla söguna. Það vantar ekki að ef einhver fremur kynferðisafbrot hér á Íslandi og fær 1 til 2 ára dóm þá ætlar allt um koll að keyra, en ef “íslendignur” fær alvöru dóm erlendis fara allir að grenja og vorkenna honum… undarlegt…

Að mínu áliti á sá sem fremur glæp í einhverju landi að afplána refsinguna í sama landi, það á EKKI að vera að redda þessu glæpahysi hingað heim til að láta okkur skattgreiðendur borga undir rassgatið á þeim, ef þeir eru það vitlausir að fremja glæp ílandi sem tekur strangt á þessháttar glæpum þá eiga þeir að taka afleiðingunum, “you do the crime, you do the time”.. þetta lið treystir á að komast heim á Hraunið, lifa þar fínu lífi með helgarfríum og hvaðeina.. NEI segi ég, þið getið hangið úti og verið þar.. hingað vil ég ykkur ekki og þetta á einnig við Aron Pálma.