Helvítis fasistalög. Frá með næstu viku þarf að fá lyfseðil fyrir þessum verkjalyfjum. Flestir kaupa þessi lyf t.d. við að fá flensu eða höfuðverk, hver nennir að fara til læknis með tilheyrandi kostnaði í hvert skipti sem slíkt kemur fyrir?

Já já sumir hafa orðið háðir þessum lyfjum. Margir þeirra hafa líka keypt þau með þeim tilgangi að misnota þau. ÞEIRRA VANDAMÁL! Ég veit að þetta eru ávanabindandi lyf og fer hóflega með þau. Þetta eru þau verkjalyf sem virka best í að slá á einkennin hjá mér þegar ég fæ flensu. Núna þarf ég að fara til læknis í hvert skipti sem ég veikist með tilheyrandi kostnaði.

Verð að fara á næstu dögum og kaupa birgðir fram í tímann til þess að spara peninga. Argh helvítis vesen.