Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

skuggi85
skuggi85 Notandi frá fornöld 40 ára karlmaður
3.796 stig

Re: A Little Trip to Heaven

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ok Leiðinlegt að það sé ekki fyrr.

Re: A Little Trip to Heaven

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Já held að allir skrifi jákvætt nema einn.

Re: Konan sem þorði...

í Deiglan fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ef það er nauðgun að stunda kynlíf vegna þess að manni var beitt hálstaki áður, þá held ég að þú verðir að fletta upp orðinu nauðgun. Þú einfaldlega hefur það ekki á hreinu. Er það nauðgun þegar kona vill ekki stunda kynlíf en þorir ekki að segja það eða streitast á móti? Ekki les maður hugsanir fólks.

Re: Konan sem þorði...

í Deiglan fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Útskýrðu þá hvernig þetta var karlremba í stað þess að fullyrða það. Þú virðist hafa þetta allt á hreinu. Gjörðu svo vel, ég vil útskýringu.

Re: Láttu frægt fólk segja eitthvað

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Snilld. Ætla að nota eitthvað af þessu.

Re: Michael Jackson rappari

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ég tel að hann sé saklaus já.

Re: Misnotkun!

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Flestir nauðgarar nauðga til þess að hafa vald yfir eintaklingi en ekki til þess að fá fullnægingu. Að klippa af typpið kemur ekki í veg fyrir að hann misnoti aftur.

Re: Michael Jackson rappari

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ég er bara að segja að líkurnar eru miklar á því að þau hafi bara verið gullgrafarar. Og ástæðan fyrir því að Michael endurtók ekki leikinn. Sér eftir þessu núna og vil ekki aftur hvetja til þess að fólk kæri hann fyrir peninga.

Re: Someday - Britney Spears

í Popptónlist fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Já eitt af fáu lögum á árinu sem manni finnst vera svona tilfinningalegt. Fæ alveg gæsahúð þegar ég hlusta á það :D

Re: Hvað ertu gamall/gömul ?

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Held upp á tvítugsafmælið eftir 2 vikur :D En já finnst eins og það ætti ekki að gefa upp valmöguleikann að leyna kyni og aldri. Auðveldara líka að átta sig á því hvort einhver sé með stolna kennitölu ef það verður að koma fram. Þegar einhver talar eins og bullandi gelgja og svo sér maður “Aldur: 52”

Re: Michael Jackson rappari

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Þessi maður átti þá endalausa peninga. Að ganga í gegnum svona réttarhöld er mjög erfitt. Ef maður getur losnað undan þeim með peningum sem maður getur auðveldlega látið frá sér, þá grípur maður það. En hvað segir það okkur um strákinn/fjölskylduna í fyrra málinu? Ef einhver myndi nauðga mér eða barninu mínu þá myndi ég vilja fá þann mann dæmdan PUNKTUR. Ég myndi ekki leyfa honum að sleppa fyrir það eitt að gefa mér peninga, sama hversu miklir þeir eru. Svo þegar þetta skeður annað skiptið...

Re: Michael Jackson rappari

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Þú veist að hann var sýknaður?

Re: mynd dagsins

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Væri gaman að fá sér í fötu með þessum sko :D

Re: fucking slúður

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Þannig er þetta hjá mörgum Segir öllum í vinahópnum. En svo segir einhver í vinahópnum öðrum vini. Sá vinur á vin.. sem á vin… Þú ert alveg jafn slæmur.

Re: Rasismi að deija út?

í Deiglan fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Í raun þá er já mjög eðlilegt að vera með meira óöryggi gagnvart einstaklingi sem kemur úr öðru landi. Sérstaklega þá landi með allt öðruvísi lögum og menningu, sem þú ert sjálfur líklega ekki með á hreinu. Í sumum löndum er t.d. heiðursmorð lögleg. Mátt drepa konuna þína fyrir að hafa haldið fram hjá eða bróður þinn fyrir að vera hommi. Ef það er kært þig þá notar þú þessi rök og sleppur. Þetta er þekkt vandamál í Evrópu að sumir getu ekki hætt slíku þó þeir séu komnir í land þar sem slíkt...

Re: Mynd dagsins >D

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Hakkar þig bara inn í tölvuna. Ljót mynd :/

Re: Áskorun á 365 ljósvakamiðla og Símann

í Sci-Fi fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Einmitt ástæða fyrir því að báðir aðilar opni aðgang að báðum stöðunum. Báðar stöðvarnar fá meira áhorf við það sem þýðir að auglýsingapláss hjá þeim báðum verður verðmætara.

Re: Sjálfhjálparbók um rómantík

í Rómantík fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Hlutfall kvenna á Alþingi hefur í gegnum tíðina verið meira en hlutfall kvenna sem taka virkan þátt í pólitík. “Eðlilegast” væri að hlutfall kvenna á Alþingi væri það sama og hlutfall kvenna sem hafa áhuga á pólitík og taka virkan þátt. Þessi tala er aðeins um 20%, af hverju ættu fjöldi kvenna á Alþingi þá að vera meiri en 20%? Í raun má segja að kona í dag á auðveldara með að komast á þing en karlmaður. Þar sem það eru svo mikið fleiri karlmenn sem reyna að komast þangað. Ef konur væru...

Re: Konan sem þorði...

í Deiglan fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Nú virðist þú skipta þessu í eitthvað kynjastríð. Skoðun mín á þessu máli væri ekkert öðruvísi ef “fórnarlambið” væri karlmaður.

Re: Afmælisdagarnir*

í Fræga fólkið fyrir 20 árum, 7 mánuðum
6. Júlí Sylvester Stallone/Rocky/John Rambo Eiga þeir í alvöru afmæli sama dag? Skemmtileg tilviljun.

Re: PARKÓDÍN!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Frjálshyggjan snýst fyrst og fremst um frelsi sjálfráða einstaklinga. Undantekningarnar eru börn og einstaklingar sem hafa verið sviptir frelsi. Börn eru undir yfirráðum foreldra og því er ekki rétt að koma fram við þau eins og sjálfráða einstaklinga. Og fyrst frelsi einstaklingsins er svona rosalegt, á að leyfa 15 ára unglingum að nota kókaín, hvað með 5 ára. Þá er verið að skerða frelsi þeirra ef það er bannað. Hvað með bílpróf, hafa allir frelsi til að keyra bifreiðar sama undir hvað...

Re: Dönsku hjálp? Einhver??

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ég hef samt heyrt að þeir skilji ágætlega mikið í spænsku í Brasilíu þó það sé ekki móðurmálið. Tungumálið á allavega að vera frekar algengt í S-Ameríku. Um helmingur íbúa í Los Angeles hafa spænsku sem móðurmál sitt.

Re: Glæponum gert hátt undir höfði...

í Deiglan fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Líkurnar á því að þú verðir strax fíkill við það að einhver blandi efnum við drykkinn þinn eru mjög litlar. Í raun bara ómögulegt. Allavega þegar kemur að líkamanum. En það er kannski annað ef þér bara líkaði svona rosalega vel við það andlega að þú ákveður að prófa það á eigin forsendum. Eina sem mér dettur í hug að gæti gert þig strax að fíkli er að sprauta sig. Ef þú skiptir fíkniefnum í 7 flokka eftir því hversu ávanabindandi þau eru, bæði löglegum og ólöglegum. Þá er tóbak í 1.flokki og...

Re: Dæmigert "blogg" unglingsstelpu

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Já skil ekki þessar gelgjur. Sjálfur kýs ég að tala um alvarleg málefni í mínu bloggi. T.d. pólitík, samkynhneigð og Britney Spears. Nenni ekki að blaðra um hvað ég fékk mér í morgunmat.

Re: Britney og Kevin heima hjá sér

í Fræga fólkið fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Já núna velta slúðurblöðin sér upp úr þessu. Meðal annars frétt þar sem er sagt frá því að Christina Aguilera hafi sent henni megrunarvörur :D heh
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok