Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

skuggi85
skuggi85 Notandi frá fornöld 40 ára karlmaður
3.796 stig

Re: Fundinn sekur um aðild að hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin

í Deiglan fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Sama hversu lítinn þátt þú áttir í þessu, það vegur mikið. Einn maður sem hefur lítinn þátt getur komið í veg fyrir allt með því að gefa sig fram. Ímyndaðu þér að þú yrðir dæmdur fyrir að eiga óbeinan þátt í morði á einni manneskju, eitthvað sem þú vissir af og hefðir getað komið í veg fyrir. Yrði ekki eðlilegt að þú færir í fangelsi lengur en 3 daga?

Re: Vill e-r kaupa BLÁAN OPAL?

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég hef líka fengið heimsókn frá óvirkum alka þegar ég var í skóla. Samt drekk ég og ég er alls ekki óvirkur alki. Aldrei haft drykkjuvandamál.

Re: Besta íslenska hljómsveitin?

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Var ekki kaldhæðni. Kaupi allar plötunar þeirra.

Re: *atturinn cheers

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Já ekki einu sinni reyna það. Allt of flókið orð fyrir þig.

Re: Besta íslenska hljómsveitin?

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Írafá

Re: *atturinn cheers

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Gagnkynhneigðir kunna ekki ensku.

Re: Fundinn sekur um aðild að hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin

í Deiglan fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Er það sanngjarnt að hann sleppi þegar hann ber að hluta til ábyrgð að dauða tæpum 3000 manna? Eins og ég sagði þá eru það 3 dagar í fangelsi fyrir hverja manneskju.

Re: *atturinn cheers

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Já en þá er það ekki “seinasti” þáttur af því hann var sýndur fyrir mörgum árum.

Re: Geðorðin 10

í Heilsa fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Það er satt að SUMIR fara í uppreisn á unglingsárunum og skálda eitthvað eða ýkja til þess að fá athygli. En þú verður að passa þig á því að dæma ekki alla þunglyndissjúklinga eftir því. Uppreisn og þunglyndi er ekki það sama. Andlegir sjúkdómar eru endurspeglun af líkamanum í mjög mörgum tilfellum. Þess vegna getur þú fengið andlegan sjúkdóm frá erfðunum. Strákar/ungir karlmenn eru helsti áhættuhópurinn. Tugi manna falla fyrir eigin hendi á hverju einasta ári á Íslandi. Fleiri en deyja í...

Re: Aðför að réttarríkinu

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Baugur borgar hærri laun en ríkið. Enough said :D

Re: Geðorðin 10

í Heilsa fyrir 20 árum, 5 mánuðum
En er sá sem sker sig eða drepur sig vegna athygli heilbrigður á geði? Getur ekki verið rót vandamála sem koma hönum í þessa stöðu? Guð minn góður hvað þú ert gamaldags. Ertu að neita því að þunglyndi geti verið líkamlegur sjúkdómur? Þetta er ekki spurning um að hafa lent í því verra eða betra. ÞETTA ER SJÚKDÓMUR. Þunglyndi og kvíði eru með algengustu sjúkdómum sem til eru. Núna ert þú í fínu lagi þó þú hafir ekki farið á lyf eða til sálfræðings. Nú er ég líkamlega í fínu lagi þó ég hafi...

Re: Chad Michael Murray á lausu!

í Fræga fólkið fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Jessssssssssss! :D

Re: Geðorðin 10

í Heilsa fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Hverjum er það að kenna að unga fólkið í dag er ekki til í að leggja jafn mikið á sig og áður? Ábyrgðin hlýtur að vera hjá foreldrum. Börn eru marga klukkutíma á dag alein heima fyrir framan sjónvarp eða tölvu og agi er lítill sem enginn vegna þess að foreldranir vinna aukavinnu til þess að hafa flottari eignir en nágranninn. Skilningur þinn á þunglyndi er greinilega enginn. Það er minnihlutahópur sem verða þunglynd vegna þess að þau lentu í einhverju óhappi. Auðvitað hafa allir sínar slæmu...

Re: Rasismi að deija út?

í Deiglan fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Vá fáfræðin sem kemur út úr þér. Að flestir innflytjendur ráðist á fólk af ástæðulausu en að infæddir hafi ástæður. Þetta er mesta þvæla sem ég hef heyrt. Ég hef miklu oftar orðið var við það að Íslendingar geri þetta. Þau fáu skipti sem ég hef orðið vitni af þessu vera öfugt þá er það oftast þannig að Íslendingurinn ögraði honum til þess. Veit ekki hvort þetta sé eitthvað öðruvísi í Breiðholti en þetta er mín reynsla almennt á landinu. Ég tel samt vera slæmt að útlendingar safnist saman á...

Re: heimanám

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ef þú ert með þennan hugsunarhátt þá efast ég um að þú sért að læra nóg í skólanum. Finnst samt að skólarnir mættu stytta daginn, sérstaklega framhaldsskóla. Finnst eins og að nemendur ættu alltaf að geta haft eðlilegan vinnutíma eins og fólk á vinnumarkaðnum. Fyrir utan þegar maður þarf að læra fyrir próf. Ekki gamann að vera búinn í skólanum kl 17 og þurfa svo að gera 2+ tíma heimanám um kvöldið. Skólarnir eru flestir illa skipulagðir og eyða of miklum tíma í óþarfa hluti.

Re: Vill e-r kaupa BLÁAN OPAL?

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Persónubundið og fer svo eftir því hversu ávanabindandi efnin eru. Mörg fíkniefni eru minna ávanabindandi en áfengi.

Re: Vill e-r kaupa BLÁAN OPAL?

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég er ekkert að snúa út úr. Ég nota þessi efni minna í dag en fyrsta árið. Hugsa út fyrir áróðurinn. Það verða ekki allir fíklar neitt frekar en það verða allir alkar. Klikkaðu á linkinn í undirskriftinni hjá mér.

Re: *atturinn cheers

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég veit. En það eru endursýningar.

Re: Baugur - Kominn með ógeð á þessu.

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Já já ég vissi það. Þetta er samt alveg rétt hjá þeim. En auðvitað eru þeir bara að verja fyrirtækið sitt. www.visir.is/ VefTV

Re: Geðorðin 10

í Heilsa fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Eða að foreldrar séu að standa sig verr í dag vegna öfga-lífsgæðakapphlaups? Eða af því það er í lagi að leita sér hjálpar. Ungt fólk er mikið líklegra til þess að fremja sjálfsmorð en fullorðnir. Hver er tilgangurinn með því að fá athygli ef þú færð hana eftir að þú ert dauður?

Re: Vill e-r kaupa BLÁAN OPAL?

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Eru allir sem drekka áfengi alkar afneitun?

Re: Baugur - Kominn með ógeð á þessu.

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Það er víst hægt að verða ríkur án þess að fara yfir strikið. En þeir fóru ekki yfir neitt strik upprunalega. Það var byrjað á því að ofsækja þetta fyrirtæki vegna þess að þeir voru ekki vinir forsætisráðherra eins og fyrra veldið. Sem setti þá í erfiða stöðu og kom þeim yfir strikið á endanum.

Re: Hvað ertu gamall/gömul ?

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Er ekki hægt að stofna áhugamál fyrir fullorðna hér án þess að hinir yngri séu að skipta sér af? Held að það sé ekki góð hugmynd. Og yrði það þá bara um öll áhugarmál? Í raun er þörf á því að stofna bara íslenskt spjallsvæði sem er aðeins fyrir 18+ ára fólk. Þá meina ég ekki áróðurstengt eins og t.d. Femin.is heldur bara svipað og Hugi, bara fyrir eldri. Hugi/Síminn gætu alveg tekið það að sér. Gætu meira að segja til þess að einfalda þetta bara gert copy af núverandi Huga og setja það á...

Re: Baugur - Kominn með ógeð á þessu.

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Já því miður. Hún er líka með svo miklar tilfinningar í þessu. Hún endist varla út 1 mínútu viðtal. Eins og að horfa á ungling útskýra slagsmál fyrir kennara.

Re: Misnotkun!

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Þú verður sakhæfur þegar þú verður 15 ára. Höfum það bara þannig að aðeins 15+ geta farið í fangelsi eða fengið dauðadóm fyrir einelti. Allt í lagi?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok