Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

skuggi85
skuggi85 Notandi frá fornöld 40 ára karlmaður
3.796 stig

Re: Social Security

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Og fíkniefnastríðið vegur meira en helminginn í þeim áróði :)

Re: Social Security

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Já afsakið… Meina auðvitað stjórnvöld, þau sömu og gagnrýndu frelsunina.

Re: Social Security

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Trúðu mér Bush hefur viljað fara inn í Írak alveg frá því pabbi hans klúðraði því. Það er allt of einfalt að þetta sé eitthvað kosningarspil eftir að hann varð forseti.

Re: Smyglaði hassi í leyniklefa Harrys Potter

í Harry Potter fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Nei alveg eins og það er bara almennt ekki rétt að slúðra um einkalíf fólks (gerum það reyndar flest)… Ef þú ert svona á móti þessu þá er besta leiðin til þess að tjá slíkt með því að sleppa því að kaupa blaðið.

Re: bin laden vs bush

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
* Hundruðir þúsunda en ekki hundruðir. Tölurnar sem eru nefndar eru vanalega á milli 300.000 og 1,2 milljónir. Jafnvel þó við notum bara lægri töluna, þá eru dauðsföll saklausra borgara lægra að meðaltali eftir innrásina en fjöldamorð Saddams. * Bandaríkjamenn hafa ekki komið fram við þetta land eins og englar, það viðurkenni ég. En sama má segja um Sameinuðu Þjóðirnar og Evrópulönd, sem því miður töldu eigin hagsmuni vera verðmætari en frelsi Íraka. http://www.medyaarts.com/mg_reviews.htm...

Re: Dauðadómur !

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Veistu um eitt dæmi þar sem hefur verið gert þetta nákvæmlega eins og ég var að tala um? Þetta er ekki svo einfalt að setja allt undir sama hattinn. Álíka heimskulegt og þegar fólk fordæmir einkavæðingu með nokkrum slæmum dæmum. Já blessaða samkeppnin. Eigum við kannski líka að banna íslenskum fyrirtækjum að opna verksmiðjur erlendis? Ég meina þar er hægt að fá ódýrt vinnuafl, eigum við ekki bara að banna slíkt til þess að “vernda” vinnumarkaðinn okkar? Fyrirtækin myndu öll fá sama tækifæri...

Re: minni líkur á krabbameini af kanabis en sígó

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Þessi lýsing þín er ýkja á dagreykingarfólki. Ég skil ekki þessa tilhneigingu að telja upp möguleika á skaðsemi þegar kemur að fíkniefnum. Næstum talað eins og tóbak og áfengi séu eitthvað væg efni (eru það ekki). Að leyfa tóbak og áfengi á meðan það er gert þá að glæpamönnum sem kjósa önnur fíkniefni er einfaldlega ein mesta hræsni sem mannkynið hefur tekið upp á. Ótrúlegt hvað það hefur líka verið lengi í gangi. Fær mann til þess að átta sig á því hversu rosalega erfitt er að brjóta niður...

Re: Gallar frjálshyggju

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ertu að vinna? Ef svo er, hvernig lýst þér á að vera að borga um 80 þúsund krónur af laununum í nýja tónlistarhúsið? Frjálshyggjan getur virkað dálítið “allt eða ekkert” við fyrstu sýn, jafnvel að fólk neyðist út í vissa hluti. En grundvallaratriðið er að ekki megi neyða fólk til þess að gera eitthvað á meðan þau hafa sjálf ekki brotið á frelsi annarra. Ef þú treystir stjórnvöldum fyrir því að taka vissan hlut af þeim verðmætum sem þú hefur skapað og ráðstafa þeim fyrir þig, þá sé ég í...

Re: minni líkur á krabbameini af kanabis en sígó

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Nei. Margt bendir til þess að það sé auðveldara fyrir unglinga að redda sér fíkniefnum en áfengi. Enda hafa flestir dópsalar litlar sem engar takmarkanir á sölu sinni á meðan þeir fá peningana. Einnig þá er lögð meiri áheyrsla á að vernda ungmenni frá drykkju en fíkniefnum. Margir foreldrar óttast að barnið byrji að reykja eða drekka, ásamt því að hugsa “nei ekki barnið mitt” þegar kemur að öðrum efnum. En jafnvel þó þú hafir rétt fyrir þér. Á það virkilega að vera í lagi að banna sjálfráða...

Re: minni líkur á krabbameini af kanabis en sígó

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
En fólk verður náttúrulega að bera ábyrgð á eigin lífi og líkama. :)

Re: Kona dæmd í fangelsi fyrir að setja heimilisköttinn í þvottavél

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Fólk sem hugsar málið til enda áður en farið er út í kattareignir?

Re: minni líkur á krabbameini af kanabis en sígó

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Já auðvitað. Þó ég styð lögleiðingu þá styð ég ekki misnotkun á fíkniefnum. Sama hvort það er áfengi eða kannabis sem er verið að tala um. Styð forvarnarstarfsemi (á meðan það er ekki bann-áróður) að fullu.

Re: Kókaín

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Veit aldrei? Ég get lofað þér því að þessar lýsingar eru um dagreykingarmanninn. Þú verður ekki svona allt í einu, þetta skeður smátt og smátt eftir langan tíma af neyslu án þess að tak hlé á milli. Málið er að heilinn þarf hvíld frá neyslunni. Alveg eins og með áfengi. Ef þú drekkur þig fullann oft í viku þá sést það á þér mjög fljótlega. Bæði á útliti og frá samskiptum. Ef þú notar hass hóflega eins og er vanalega gert t.d. með áfengi, þá eru líkurnar mjög litlar á alvarlegum skaða. Svo...

Re: Morgunblaðs miðasala á Sigur Rós

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Þetta er eitt stórt samsæri til þess að draga athyglina frá Baugsmálinu!!! :/

Re: Kvennafrí...

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Reyndar er það u.þ.b. 80%. En ég get lofað þér því að hlutfallið er meira en 20% hærra hjá karlmönnum þegar kemur að því að sækja um launahækkanir og vera virkur í samkeppni við aðra starfsmenn. Svo eru karlmenn að sækjast í ýmsar erfiðisvinnur sem eru vel borgaðar, þetta er ekki bara spurning um fínar skrifstofuvinnur. Hversu margar konur eru úti á sjó eða í byggingarvinnu? Þjónustustörf eru að mestu láglaunastörf. Þó að körlum hefur fjölgað í þeim störfum þá eru konur samt sem áður en þá í...

Re: minni líkur á krabbameini af kanabis en sígó

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Já já… En það hlýtur að vega minna en algengu dauðsföll hjá áfengis- og tóbaksneytendum. Auk þess að það á í raun að vera auðveldara að halda neyslunni í hófi þegar kemur að fíkn en flestum öðrum fíkniefnum, meðal annars þeirra löglegu.

Re: Kona dæmd í fangelsi fyrir að setja heimilisköttinn í þvottavél

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Með nútíma tækni er hægt að skipluleggja björgunaraðgerðir fanga t.d. með bátum eða flugvélum. Aðeins að hugsa málið til enda.

Re: Kona dæmd í fangelsi fyrir að setja heimilisköttinn í þvottavél

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Mjög erfitt að dæma svona. Sérstaklega með yngri stelpuna sem var bara 5 ára. Að sjá mömmu setja þvottavélina í gang með Fluffy inni í henni að berjast fyrir lífi sínu. Þetta er mjög gróft andlegt ofbeldi og á konan skilið nokkra mánaða fangelsi fyrir það að mínu mati. Einnig þarf að taka upp sérstaklega mál hjá barnaverndayfirvöldum um hvort móðirin sé hæf til þess að sjá um börnin. Ef það er eitthvað mikið að henni andlega má alveg íhuga að svipta hana forræði, allavega tímabundið á meðan...

Re: Kona dæmd í fangelsi fyrir að setja heimilisköttinn í þvottavél

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Finnst hún eiga skilið nokkra mánaða fangelsi fyrir þann andlega skaða sem hún hefur valdið börnunum. Það vegur meira að mínu mati en drápið sjálft.

Re: Kona dæmd í fangelsi fyrir að setja heimilisköttinn í þvottavél

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Já já… Og ert þú til í að borga fyrir alla sálfræðitímana sem 5 ára stelpan á eftir að fara í þegar hún eldist? Eins og ég sagði þá met ég þetta ekki á drápinu sjálfu heldur að hafa gert það fyrir framan börnin. Finnst að hún ætti að fá lágmark 6 mánuði en ekki vikur.

Re: Kona dæmd í fangelsi fyrir að setja heimilisköttinn í þvottavél

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Samt sem áður er það mismunun gagnvart öðrum ef á að taka tillit til aðstæðna. Hvað ef þetta væri einstæður faðir sem misnotaði börnin sín? Hefðir þú sagt það sama? Svo eiga barnaverndayfirvöld örugglega eftir að taka upp málið, líklega er ekki búið að komast að þeirri niðurstöðu hvort móðirin sé hæf eða ekki til þess að sjá um börnin sín. Slíkt ferli getur verið langt, örugglega lengra en 6 vikur.

Re: Kona dæmd í fangelsi fyrir að setja heimilisköttinn í þvottavél

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Já.. svo þegar þú ert nýbúinn að henda örbylgjuofninum þá hugsar þú “Ó NEI”… Flýtir þér heim. Þegar þú kemur heim er það orðið of seint, lögreglan á staðnum að skoða ÞVOTTARVÉLINA. Þú handtekinn ásamt því að hafa hent örbylgjuofni til einskis :)

Re: Besta Hrollvekjan?

í Kvikmyndir fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ég er sammála þessu. Þegar hausinn á barninu var að snúast og það var ælandi þá sprakk ég bara úr hlátri. Þegar maður er búinn að sjá fullt af nútímahryllingsmyndum á undan þessari þá er ekki hægt annað en að hlæja bara :)

Re: Nýr Bond, James Bond valinn

í Kvikmyndir fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Góður leikari í vitlaust hlutverk. Vona að hann geri bara eina Bond mynd. Þetta er eins og að láta Woody Allen leika James Dean.. Just aint right.

Re: true lies 2

í Kvikmyndir fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Curtis þarf líka að fara undir hnífinn.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok