Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

skuggi85
skuggi85 Notandi frá fornöld 40 ára karlmaður
3.796 stig

Re: Dauðadómur !

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Írakar sjá um að dæma hann en ekki bandamenn. Að hann fái dauðadóm sendir sterk skilaboð til annarra einræðisherra, einnig til þeirra sem hafa íhugað slíkt.

Re: bankalán

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Eiga öll launin að fara í lánið? Er það ekki dálítið öfgafullt? Fá lengri tíma?

Re: "Hópþrýstingur"

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Gallinn er að þegar þú venur þig á það, þá verður þú en þá verri þegar þú færð ekki áfengi en þú varst áður. Þekki einn svona. Bara 19 ára og getur ekki skemmt sér án áfengis. Símasamtal… Ég: Á að kíkja eitthvað út í kvöld? Hann: *Fýlurödd* Neeeiiihhhhh ég náði ekki að redda áfengi. Ég hef haft þá reglu að vera edrú annað hvert skipti sem ég djamma. Á líka bíl svo stundum er ágætt að hafa minna vesen og vera bara ökumaðurinn í hópnum.

Re: Social Security

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Öryggi og efnahagslegur stöðuleiki seinustu áratugina (og í dag) má að mestu leiti þakka Bandaríkjunum. Þó það séu ekki allir sammála stökum hernaðaraðgerðum þeirra þá breytir það ekki mikilvægi þeirra í heiminum.

Re: Dauðadómur !

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ég er ekki 100% á móti dauðadómi en finnst bara að það eigi að fara mjög varlega í slíkt. Meira en er gert t.d. í Bna. Sé aðeins notað í öfgadæmum þar sem sekt er án vafa, glæpurinn sögulega grófur og það sé sátt hjá stórum meirihluta að slíkt sé gert sem undantekningu. Sjálfur vona ég að Saddam Hussein verði dæmdur til dauða, helst hengdur á almannafæri. En það er líka enginn vafi á sekt hans og flestir Írakar vilja að hann fái dauðadóminn. Bara það að hann fái að halda lífi getur valdið...

Re: Dauðadómur !

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
GMG þetta er örugglega ein af verstu dauðadögum sem til eru :/

Re: Mjóar konur i Hollywood

í Fræga fólkið fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Samt sem áður þá er að aukast að konur séu bara í góðu formi. Með fituprósentu í lægri kantinum ásamt því að hafa stunda líkamsrækt. T.d. Beyonce og Britney eru góðar fyrirmyndir. Nýjustu unglingastjörnunar eins og Lindsay Lohan og Hillary Duff virðast vera að taka þróunina smá aftur á bak.

Re: "Hópþrýstingur"

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ég held að flestir byrji að drekka að alvöru eftir að hafa prófað einu sinni og áttað sig á því að hversu ýktur áróðurinn var sem þau heyrðu áður. Fyrir mér var mjög spennandi að drekka alveg tveimur árum áður en ég loksins gerði það. Það getur verið erfitt fyrir ungling að redda sér, því er gott að nota tækifærið þegar maður er í hópi og einhver er að deila áfengi. Það er alltaf málað upp þá mynd að það sé stór hópur að þrýsta á aumingja saklausa Jóa að fá sér sopa. Ég held að oftar sé það...

Re: Fíkniefni og Reykingar.

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
P.s. enginn er hlutlaus. Að segja að það eigi ekki að taka mark á þeim sem nota efnin er mjög ósanngjarnt. Eins og að segja að aðeins eigi að taka mark á bindindisfólki þegar kemur að umræðu um áfengi.

Re: Fíkniefni og Reykingar.

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
hefur fólk spáð í því t.d afhverju það er alltaf að vera ræna apótekin? Dópistar. Já kannski apótekin. Af hverju eru dópistar að ræna banka? Af því fíkniefni eru ólögleg. Ekki algengt að alkar geri það. Þúsundir manna nota ólögleg fíkniefni á Íslandi. Því er erfitt að taka mark á öfgadæmum. Það verða ekki allir slagsmálahundar við það að drekka áfengi, alveg eins og það verða ekki allir ræningjar við það að nota ólöglegu efnin.

Re: Fíkniefni og Reykingar.

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
“Hass er langalgengasta fíkniefni á Íslandi” Og ég sem hélt að tóbak og áfengi væru algengari. Tvo algengustu fíkniefni á landinu. Þó þau séu lögleg þá eru þetta fíkniefni samt sem áður. Ég hef reykt hass í tæplega tvö ár. Hvorki ég eða fólk í kringum mig hefur tekið eftir breytingum á mér, engan grunar að ég sé í slíkri neyslu. Enda nota ég efnin hóflega alveg eins og áfengi. Það pirrar mig mjög mikið að næstum allt í greinninni tekur mark á þeim sem að urðu háð fíkniefninu, en ekki hinum...

Re: Silvía Nótt.

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Elska þegar hún syngur. Maður heyrir á nokkrum tónum að hún hefur sönghæfileika en hún reynir að gera þá falska :)

Re: Simpsons í Arabíu -> Al Shamsoons :')

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ég held að maginn þeirra minnki eitthvað þennan mánuð sem þeir fasta. Ekki oft sem maður sér feita araba, jafnvel þá sem eiga nóg af peningum. Spurning hvort að það haldi ekki maganum inni en meðaltal það sem eftir er ársins að hafa svona föstu. Svo getur þetta líka verið eitthvað í genunum. Þekki einn araba sem býr hérna á Íslandi og hann virðist geta troðið í sig eins og honum sýnist en er alltaf undir 70 kg :/ *öfund*

Re: Gallar frjálshyggju

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Í Bna er líka ríkisrekið heilbrigðiskerfi. Sá sem fær sér tryggingu þarf bæði að borga skatta í heilbrigðiskerfi ásamt því að borga tryggingu. Þetta er ekki flókið. Þú lætur peningana í sjóð hjá einkaaðilum í stað ríkisins. Finnst fyndið að þú fordæmir einkavæðingu ásamt því að fjölskyldan þín hafi svikið skylduáskriftina að Rúv. Það er kosturinn við frelsi. Maður getur ákveðið sjálfur hvert peningarnir fara. Ef þú átt bara efni á einni sjónvarpsstöð þá getur þú ákveðið að eyða peningunum...

Re: Social Security

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Það er ekkert víst að þið náið að halda snobbinu í miðri kreppu.

Re: minni líkur á krabbameini af kanabis en sígó

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Gott hjá þér. Gott ef að fólk kýs slíkt af frjálsum vilja.

Re: Simpsons í Arabíu -> Al Shamsoons :')

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Fyndið að það sé verið að tala um að “neyða” vestræna menningu yfir þetta heimssvæði þegar fólk þarna er í auknu mæli að gera það sjálft. Nokkur arabalönd hafa nú þegar vestræna skyndibitastaði, arabísk útgafa af Simpsons er að hefjast og arabískt Idol hófst fyrir nokkrum árum.

Re: Simpsons í Arabíu -> Al Shamsoons :')

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Heldur þú að jafn margar sjónvarpsstöðvar hefðu sýnt þættina á vesturlöndum ef Hómer hefði reykt kannabisjónu í stað allra þeirra atriða þar sem hann er að drekka áfengi? Hugsa aðeins út fyrir kassann.

Re: minni líkur á krabbameini af kanabis en sígó

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Já bara vera aleinn heima með vodka flösku í hendinni. Djöfull á það eftir að bæta vínmenninguna okkar ;)

Re: minni líkur á krabbameini af kanabis en sígó

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Það er mjög einföld niðurstaða. Það er ekki nicotine í cannabis ásamt því að það er ekki bætt við fjölda eiturefna í þeim tilgangi að auka líkur á fíkn. Þó það sé kannski meiri tjara þá eru margfalt færri eiturefni í cannabis, meira náttúrulegt.

Re: minni líkur á krabbameini af kanabis en sígó

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Þannig að þér finnst bara fínt að banna þau ef það væri mögulegt? Eða eigum við að leyfa fólki að taka ábyrgð á eigin lífi og nota þau fíkniefni sem þau kjósa? Finnst oft fyndið þegar jafnvel fólk sem notar efnin segist styðja það að þau verði bönnuð ef það væri mögulegt. Ég held að slíkt sé sagt vegna vitneskjuna um að það verður aldrei að raunveruleika, allavega á næstu áratugum. Ef ég vil drekka bjór, reykja hass eða fá mér eina ellu þá bara einfaldlega kemur það stjórnvöldum ekki rassgat...

Re: Gallar frjálshyggju

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ertu virkilega að halda því fram að hérna á Íslandi er mikið um fólki sem ætti ekki efni á slíku? Auðveld er að komast að slíkri niðurstöðu þegar maður ber saman við núverandi skerðingu stjórnvalda á tekjum fólks. En ef maður fær að ráðstafa öllum tekjunum þá ætti maður auðveldlega að ráða við slíkt. Í raun er þetta bara verið að færa vissan hlut af tekjunum. Í stað þess að leggja í sjóð hjá ríkinu gerir maður það hjá einkaaðilum. Munurinn er sá að það eykur þjónustu, samkeppni og...

Re: minni líkur á krabbameini af kanabis en sígó

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Nei áfengi og sigarettur eru ekki oftast vægari. Ef við tökum Bandaríkin sem dæmi… Árlega deyja um 0,1% þeirra sem drekka og einnig 0,1% þeirra sem nota ólögleg fíkniefni. Sum betri, sum skárri. En svo er hlutfallið 0,8% hjá reykingarmönnum árlega. Skiljanlegt enda er tóbak meira ávanabindandi en stór meirihluti fíkniefna, flestir þurfa að reykja margar á dag.

Re: Social Security

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Dansa um í gleðinni… fara svo daglega út að veiða fisk í kreppunni.

Re: Social Security

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Best hefði náttúrulega verið ef að NATO hefði séð um þetta með blessun Sameinuðu Þjóðanna. Ég var ekki að gagnrýna að Evrópa tók þetta ekki að sér, heldur að streitast svona á móti Bandaríkjamönnum í því.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok