Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

skuggi85
skuggi85 Notandi frá fornöld 40 ára karlmaður
3.796 stig

Re: Kofi Annan og Saddam Hussein

í Deiglan fyrir 20 árum, 3 mánuðum
P.s. svo sagði ég aldrei að Bandaríkin væru fullkomin eða án spillingar. En nú erum við að tala um þetta einstaka mál, Írak. Evrópumenn verða að taka hausinn úr sandinum þegar kemur að þessu máli og sjá heildarmyndina.

Re: Kofi Annan og Saddam Hussein

í Deiglan fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Það er ekki spilling heldur heimska þjóðarinnar að finnast það nóg að hafa tvo stóra flokka.

Re: "Varnarviðræðurnar" líklega búnar að vera.

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Eins og ég sagði áður þá var ég að miða við núverandi skattþjóðarkerfi. Maður má ekki segja neitt án þess að það sé skotið á mann fyrir annað hvort pólitíska afstöðu eða kynhneigð. Jahérna.

Re: Ísland og nauðgunardómar

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Þegar einstaklingi er nauðgað er hann rændur einhverju að eilífu og getur aldrei endurheimt það til baka. Þetta er alhæfing.

Re: Næsta WINDOWS verður ókeypis...

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Flestar ókeypis vörur með auglýsingum bjóða upp á þann möguleika að greiða gjald fyrir betri útgáfu án auglýsinga. Ef Windows verður með auglýsingum þá verður örugglega hægt að borga þær burt.

Re: Hetjur óskast! En ekki allar samt...

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Já við getum lært mikið af innflytjendum. Eins og þessi sem safnaði fyrir eigin veitingastað á nokkrum árum með því að leggja 70% launa sinna til hliðar. Ég veit ekki betur en hann hafi verið á frekar lágum launum samt. Bara fyrir suma er það ekki fátækt að hafa mat á borðinu og þak yfir höfuðið.

Re: ARGG!!!

í Deiglan fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Frjálshyggjumenn styðja það sem valmöguleika fyrir þá sem vilja borga vegakerfisgjald í keyrðum kílómetrum. Frjálshyggjumenn styðja aldrei að neyða eitthvað yfir fólk nema það sé nauðsynleg aðgerð í að vernda frelsið. T.d. handtaka ofbeldismann.

Re: "Varnarviðræðurnar" líklega búnar að vera.

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Þegar við erum hlutlaus þá er það algjör tilviljun sem ræður framhaldinu. Það var ekkert annað en heppni seinast að við fengum Breta á undan Þjóðverjum. Hvernig hefði farið ef Þjóðverjar hefðu komið hingað fyrst? Þú ert alveg til í að fá Breta eða Bandaríkjamenn hingað okkur til bjargar ef það koma upp vandræði. En samt ertu ekki einu sinni til í að styðja þær þjóðir í orði á móti. Auk þess að lífsgæði fara á botninn hvort sem er ef kjarnorkusprengjur lenda á Evrópu og/eða Bandaríkjunum. Ég...

Re: Strákarnir

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Já hann er eiginlega of neikvæður og stífur oft til þess að vera í þessum þáttum. Svo sér maður neikvæðnina oft þegar hann er bara að tala um ákveðið fólk eða málefni, þarf að fá sér smá prozac kallinn.

Re: Dauðarefsingar eru ekki réttlætanlegar

í Deiglan fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Þú verður náttúrulega að sjá heildarmyndina… T.d. Saddam Hussein. Stór meirihluti Íraka vilja að Saddam Hussein fái dauðadóm, margir eru meira að segja reiðir núna bara vegna þess það er farið í gegnum réttarhöldin þegar það er enginn vafi á sekt hans. Þetta er auðvitað allt fyrir alþjóðlega ímynd, það er löngu ákveðið að hann eigi að verða dæmdur sekur. Eina sem er óákveðið er líklega refsingin, en sjálfur veðja ég á að hann fái dauðadóm þar sem Írakar sjá sjálfir um réttarhöldin og...

Re: K-Fed og Britney Spears

í Fræga fólkið fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Já þetta er víst gömul mynd. Hún er kannski ekki alveg komin í svona gott form, en samt er hún frekar fljót að missa og maður sér mun eiginlega hvert skipti sem ný mynd kemur. Konur sem hafa alltaf verið í topp formi frá unglingsaldri virðast vera frekar fljótar að snúa við þróuninni eftir fæðingu.

Re: "Varnarviðræðurnar" líklega búnar að vera.

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Nei en þú verður alveg örugglega lifandi þegar hún skellur á. Ætla að vona að það verði ekki anti-USA stjórnvöld á Íslandi þegar hún skellur á. Það er ekki víst að við verðum jafn heppin og í seinustu heimstyrjöld. Og eins og ég sagði, maður eignast ekki bandamenn eftir að styrjöld skellur á. Sérstaklega þegar það er smáþjóð sem skiptir litlu máli.

Re: Íslenskur Her?

í Deiglan fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Nú eru nokkur ár síðan ég var í námi ásamt því að ég var í miklum námserfiðleikum áður en ég hætti. Svo það er dálítið þreytt og viðkvæmt að geta ekki tjáð sig án þess að fá oft athugasemdir um sömu hlutina.

Re: Hetjur óskast! En ekki allar samt...

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 3 mánuðum
er sjálfsagt að fá ókeypis sjúkraþjónusut ? Af hverju ekki gefa neitt til baka ? Og hefur maður eitthvað val um það? En nei auðvitað er það ekki sjálfsagt, enda á að einkavæða heilbrigðiskerfið sem fyrst. En annars þá er ekkert ókeypis bara svo þú vitir það, heilbrigðiskerfið er rekið með skattpeningum þegnanna. En já ég held mig við það að þessi hugmynd er ekki beint gáfuleg. Hún er hvetjandi fyrir þá sem eru smitaðir að gefa samt blóð af því það yrði normið. Svo myndum við fá margfalt...

Re: Íslenskur Her?

í Deiglan fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Ok sorrý ég skal hætta að tjá mig.

Re: Strákarnir

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Er ekki dálítið ofnotað grín að nota kynlíf eða samkynhneigð? Vantar meiri frumleika.

Re: Íslenskur Her?

í Deiglan fyrir 20 árum, 3 mánuðum
En er til raunhæf leið til þess að hertaka land og flytja svo vatn til heimalandsins? Eða verður hertekið landið til að gera að nýlendu?

Re: Ísland og nauðgunardómar

í Tilveran fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Mér finnst nú fíkniefnabrot allt öðruvísi en nauðgun og misnotkun. Fíkniefni er jú.. fíkn, og fíkniefnasala er leið til að afla sér peninga. Handrukkun er einnig leið til að afla sér peninga. Nauðgun er fyrir flesta andlegt morð. Að brjóta lög fyrir pening og að brjóta lög fyrir stundarfullnægingu þarfa sinna er bara alls ekki sami hluturinn, þannig ég skil ekki alveg hvað þú ert að blanda fíkniefnum inní þetta. Eitt af mörgum dæmum þar sem aukin harka gerir ástandið verra. Whoa.. kannski...

Re: "Varnarviðræðurnar" líklega búnar að vera.

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Vilt þú þá ekki bara flytja í kommúnistaríki? Hvernig vogar þú þér að segja þetta?

Re: "Varnarviðræðurnar" líklega búnar að vera.

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Því er ég ósammála. Hvað hefði skeð ef þjóðverjar hefðu komið hingað á undan? Hefðu Bretar komið til bjargar? Hversu mörg þúsund Íslendinga hefðu fallið í þeim átökum?

Re: Kofi Annan og Saddam Hussein

í Deiglan fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Nei ég er að segja þetta svo Evrópu-egóistar taki hausinn upp úr sandinum og sjái þá spillingu sem er í Evrópu og Sameinuðu Þjóðunum.

Re: Jacques Chirac og Saddam Hussein

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Þegar Írak byrjaði að fyllast af frönskum fyrirtækjum, Frakkar fengu prósentu af oil-for-food verkefninu og Saddam fékk fullt af vopnum frá Frökkum? Svo var auðvitað endurgreitt greiðann með því að mótmæla innrás í landið í öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna. Sama má segja um Þjóðverja.

Re: ARGG!!!

í Deiglan fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Þetta á nú við allar þjóðir. Bara misjafnt hversu mikið. Nú er komið í umræðu á Íslandi að setja það í lög að allir bílar hafi ökurita. Kæmi mér ekki á óvart ef slíkt yrði samþykkt miða við núverandi vinsældir forræðishyggju.

Re: "Varnarviðræðurnar" líklega búnar að vera.

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Þú færð aldrei alla til þess að losa sig við slík vopn á sama tíma. Sá sterkasti lifir af. Þannig hefur heimurinn alltaf verið og mun alltaf vera. Ef við eigum ekki að leggja neitt í hernaðarstarf þá ættum við ekki heldur að vera í NATO, það er fáránlegt að jafn rík þjóð og okkar fái allt borgað undir sig þegar kemur að þessu. Þú vilt kannski taka sénsinn á að Evrópuríki eða Bandaríkjamenn komi okkur til bjargar þó það sé ekkert sem skuldbindi þau til þess, eins og það að vera í NATO. En ég...

Re: Lampar við skammdegisþunglyndi...

í Hugi fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Sá einmitt í sjónvarpinu um vesturbæjarlaugina. Þá var bara verið að biðja fólk um að koma þangað, ekkert verið að nefna hvar sé hægt að kaupa svona lampa en þó nefnt að það sé í boði hérlendis.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok