Veit að þetta hefur komið oft en maður getur ekki lagað neitt með því að tala einu sinni og vona að það virki

Dómstóll í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum dæmdi í dag 47 ára gamlan mann í allt að 70 ára fangelsi fyrir að nauðga dóttur sinni sem hann ættleiddi frá Rússlandi.

Hæstiréttur staðfesti í dag dóm héraðsdóms yfir manni sem ákærður var fyrir nauðgun, ölvunarakstur og fíkniefnabrot. Hlaut maðurinn þriggja ára fangelsisrefsingu og var gert að greiða eina milljón króna í miskabætur til konunnar sem hann nauðgaði.

Dómurinn sem íslenski maðurinn fékk gæti alveg eins verið bara fyrir Ölvunaraskturinn og fíkniefnabrotið þar sem þessi dómur er svo vægur.
En, ef hann hefði stolið 2 milljónum úr KB-Banka hefði hann fengið 10 ára dóm og þurft að borga 4 millur skaðabætur til bankans

Alveg út í hött þetta kerfi