Ég held að framleiðundir hljóðfæra leyfi í flestum tilfellum smásöluaðilum ekki að senda til annarra landa þar sem fyrir eru umboð fyrir fyrrnefndan framleiðanda. Annars er ég ekki viss. Ég er hins vegar stúdent í félagsfræði ef það getur hjálpað? Bætt við 10. janúar 2007 - 00:44 Þetta átti að vera framleiðendur*
Ég er ekki að segja að ég sé hlynntur aftökunni, en hitt er annað mál að ef hann hefði verið látinn dúsa í fangelsi til æviloka væri aðeins tímaspursmál um það hvenær fylgismenn hans hefðu frelsað hann með einum eða öðrum hætti.
Enginn tilgangur, við erum bara kolvetnissambönd sem fyrir einhverja absúrd tilviljun höfum öðlast vitund og eyðum tímanum í að spurja okkur svona spurninga í staðinn fyrir að láta stjórnast af dýrslegu eðli og nautnum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..