Nýi gítarinn Jæja, ákvað að skella mér á einn Gretsch Double Jet niðrí Tónastöð. Hef alltaf langað í einhvern gítar með Bigsby og ekki verra að hafa það Gretsch.
Þessi gítar er úr Electromatic línunni þeirra sem er þeirra “low budget” lína. Miklir gítarar fyrir peninginn verð ég að segja.
Er mikill Les Paul maður og er heldur betur á heimavelli ef svo má að orði komast með þennan gítar.
Hálsinn örlítið framþungur að vísu en það venst alveg.
Mæli alveg með þessum gítörum. Tónastöðin er með þá á fínum prís miðað við hvað þeir eru að kosta í útlöndunum.