Til hvers að lemja barnið fyrir að gera mistök? Hann vissi ekki betur, enda bara barn. Hann lærir þetta síðar meir og hví að vera eitthvað að hefna sín á honum fyrir mistök. Öll gerum við mistök, börn gera mörg mistök á dag en það góða við þau er að þau læra af þeim og reyna alltaf að bæta sig. Við fullorðna fólkið gerum hins vegar líka mistök og við lærum líka af þeim. Ég myndi aldrei lemja barn og hvað þá fyrir það eitt að vera ekki alveg viss hvort að Reykjavík væri á Íslandi eður ei?