Sá orðrómur gengur nú fjöllum hærra að Milo Ventimiglia og Hayden Paniettere úr Heroes séu par.

Ekki aðeins eyða þau miklum tíma saman, heldur náðist af þeim myndband í innilegum dansi á klúbbi. Það myndband er til sýnis að neðan. Þau neita samt öllum orðrómum.

Milo, sem lék Peter Petrelli í þáttunum, er þrítugur en Hayden, sem lék Claire, er nýorðin 18 svo það er þó nokkur aldursmunur.

Þett er ekki í fyrsta sinn er Ventimiglia slær sér upp með yngri samstarfskonu, en hann hefur átt í sambandi við Alexis Bledel, sem hann lék á móti í Gilmore Girls. Hún er samt aðeins 4 árum yngri.

[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=8hCdonsJAGA
I'm not suffering from insanity, I'm enjoying every minute of it.