Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Hvað finnst ykkur?

í Sápur fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Okey það er þó alla vegana bót í þessu máli að hann var ekki að giftast henni aftur. En núna er alveg víst að Gail fari og þá er bara málið hvort að Izzy yfigefi hann líka? Ég held að hann Paul eigi það alveg inni að allir (Izzy og börnin hans líka) fari bara frá honum. Þá yrði hann einn eftir í þessu stóra húsi og þá fattar hann kannski hvað hann hefur haft það gott með þeim öllum? Samt ef dæmið sem Paul var að reyna að fá einkaleifi fyrir (barnabelti eða eitthvað álíka) er ekki hægt þá eru...

Re: Stjórnarmyndun

í Stjórnmál fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Já það er alveg víst að þetta klárast ekki í dag. Í hádeginu var víst bara einhver tvö mál eftir (að sögn Ingibjargar) svo kannski klára þau að leysa þau mál í dag, hver veit? En eins og þú segiri þá á eftir að tala við þingflokk beggja flokka og svo þarf að deila niður ráðherrastólum. Svo þar er margt eftir en.

Re: stöð2

í Sápur fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Ja, ef mamma þín er hætt að borga Stöð 2 er lítið hægt að gera. Nema að þú gerist sjálf/sjálfur áskrifandi af stöðinni?

Re: Stuart?

í Sápur fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Ég var akkúrat að spá í þessu sama. Eins með hann Connor?

Re: Stjórnarmyndun

í Stjórnmál fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Okey ég skal koma sjálf með spá. Forsætisráðuneytið: XD Viðskiptaráðuneyti: XD Fjármálaráðuneytið: XD Iðnaðarráðuneytið: XS (því að það er ólíklegt að XD fái að ráða yfir öllum peningaráðuneytunum) Menntamálaráðuneytið: XD Sjávarútvegsráðuneytið: XD Samgönguráðuneyti: XD Utanríkisráðuneytið: XS - Vegna þess að Xd fær forsætisráðuneytið. Umhverfisráðuneytið: XS Félagsmálaráðuneyti: XS Heilbrigðis- og tryggingamálaráðun: XS Landbúnaðarráðuneyti: XD (því að annað væri vitleysa) Dóms og...

Re: Vissi ÞAÐ!!

í Sápur fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Ja, hún er nú ekki ennþá búin að segja neinum, nema náttúruelga Karl, frá þessu. Mér finnst að hún eigi að drífa sig í því enda er það miklu heiðalegra að segja bara sannleikann (hversu erfitt sem það kann að vera).

Re: Stjórnarmyndun

í Stjórnmál fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Ég vona allra vegna að samfylkingin fái aldrei að stjórna landbúnaðarráðuneytinu. Ef sá flokkur fær umboð með landbúnaðarráðuneytinu geta bændur allt eins pakkað saman og flutt til Reykjavíkur (sem mun þá fyllast og við munum í fyrsta sinn sjá fyrir fólksvandamálum á Íslandi). Samfylkingin veit ekki neitt um landbúnað og það hræðast það allir bændur að þessi flokkur fái okkar ráðuneyti. Samfylkingin vill helst drepa bændur og kaupa síðan landbúnaðarvörur frá útlöndum. Svo ég vona að þú...

Re: Stjórnarmyndun

í Stjórnmál fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Já þú reyndist sanspár þar. En miða við hvernig málin ganga gæti þetta allt verið komið á þriðjudaginn. Annars gæti þetta líka tekið eitthvað lengri tíma því það þarf náttúrulega að skipta niður ráðuneytum og svona sem gæti tekið eihnver tíma. Við sjáum hvað setur.

Re: Stjórnarmyndun

í Stjórnmál fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Ætli það sé ekki besti kosturinn? Ég meina það er sterkasta stjórnin, flestir þingmenn og þar af leiðandi það sem flestir í landinu vilja.

Re: Stjórnarmyndun

í Stjórnmál fyrir 19 árum
Já það er ef til vill satt. Það þarf kannski að fá eitthvað að nýju blóði þarna inn? En ég vona að það verði ekki bara nýtt blóð :)

Re: Stjórnarmyndun

í Stjórnmál fyrir 19 árum
Það er eflaust satt hjá þér.

Re: Stjórnarmyndun

í Stjórnmál fyrir 19 árum
Það gæti vel verið? En ég held því fram að Sjálfstæðisflokkurinn (þá aðallega Einar Oddur) hafi verið mun betri í að tala fyrir málefnum landbúnaðarins undanfarið en Framsókn svo að þeir hafa meira að segja ekki verið nægilega góðir í þeim málum. En þeir voru alltaf að berjast fyrir því að verða eitthvað stórt í Reykjavík og það voru mikil mistök held ég, því ef þeir hefðu bara einbeitt sér að því sem þeir eiga að vera þekktir fyrir (landbúnaðinn og bændur) þá hefði þetta kannski gengið upp hjá þeim?

Re: Stjórnarmyndun

í Stjórnmál fyrir 19 árum
Þetta er flott grein hjá þér! Þú setur þetta vel og málefnalega fram og ég er alveg sammála þér. Sjálf vil ég hafa Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórn og þó svo að stjórnarflokkarnir hafi átt gott samstarf er ég ekki viss um að það gangi núna. Enda fékk Framsókn allt of lélegt fylgi, þar sem formaðurinn er ekki einu sinni kjörinn á þing. Því miður held ég að þessir erfiðleikar Framsóknar megi rekja beint til flokksins sjálfs þar sem það er ekki langt síðan að allt fór í rugl þarna í insta...

Re: París Hilton „lifir eins og nunna“

í Fræga fólkið fyrir 19 árum
Æi veslings Paris má ekki lengur hegða sér eins og illa upp alið barn! Svo ofan á allt verður hún að heimsækja veikann föðursinn. Það er mikið lagt á eina manneskju! Ég er ánægð með að hún sé að taka sjálfsvarnartíma svo að vondu konurnar í fangelsinu geti sko fengið fyrir ferðina ef ske kinni að hún þurfi að mæta réttlætinu. Það er alveg merkilegt með sumar af þessum stórstjörnum hvernig þær haga sér og þar er hún Paris eflaust fremst í flokki! Mér finnst bara að það sama eigi að ganga yfir...

Re: Lohan fellst á kynlífssenu til að sanna leikhæfileika sína

í Fræga fólkið fyrir 19 árum
Æi vesen að þurfa að sanna sig svona fyrir umheiminum! En ég held að þetta sé fyrst og fremst vegna þess að hún var náttúrulega barnastjarna og þær virðast festast í því að vera börn. Núna er hún orðin “fullorðin” og þá þarf hún að þvo af sér barnastipilinn og þessa senu hefur hún aldrei þurft að leika sem baranastjarna! Ég vona bara hennar vegna að það gangi allt vel og heimurinn átti sig bráðum á því að hún er að fullorðnast :)

Re: Nú er nóg komið

í Söngvakeppnir fyrir 19 árum
Nei ég held að enginn viti það hér :)

Re: Bévítans Serbar!!

í Söngvakeppnir fyrir 19 árum
Nei það er kannski full mikið sagt. RUV er bara sjónvarp allra landsmanna og alveg sama hvað er um að vera í Eurovision (og hversu mikið við Íslendingar elskum þessa keppni) þá skipta Alþingiskosningarnar hérna meira máli fyrir okkur en þessi Eurovisionkeppni.

Re: Nú er nóg komið

í Söngvakeppnir fyrir 19 árum
Svo er líka annað sem við höfum ekki hugsað út í. Við meigum alveg hringja inn og kjósa en þetta er 900 númer sem er dýrasta númerið hér á landi en veit einhver hvernig kerfið er á Balkanskaganum? Gæti verið að þetta númer sé frítt þar? Veit þetta einhver?

Re: Hvenær?

í Sápur fyrir 19 árum
Okey, þannig að við getum búist við henni svona viku síðar hér.

Re: Bévítans Serbar!!

í Söngvakeppnir fyrir 19 árum
Síðustu tölurnar komu í kring um 9 morguninn eftir. En RUV hefði vel getað slept því að senda frá sér fyrstu tölurnar vegna þess að Stöð 2 var með kosnigasjónvarp líka. En ég held að RUV hefði ALDREI í lífinu farið að sleppa þessum tölum.

Re: sátt?

í Söngvakeppnir fyrir 19 árum
Ertu að djóka!?! Það lag var nú bara svona djóklag. Hitt lagið var þó alla vegana meint í alvöru! Ég skil aldrei þegar lönd komast hátt sem eru greynilega að gera gis að keppninni? Ég meina ekki komst hún Silvía langt í fyrra og því ætti þetta lag að komast eitthvað hærra? Kannski komst það svona hátt vegna þess að keppendurnir vorun ekki að móðga fólkið í kring um sig alla vikuna? Hún Silvía eiðilagði eflaust mikið fyrir sér með því og kannski erum við ennþá að súpa seiðið af þeim fíflaskap hennar?

Re: Bévítans Serbar!!

í Söngvakeppnir fyrir 19 árum
Hún átti nú alveg skilið að vinna þessi kona. Lagið var gott og hún söng það vel.

Re: Bévítans Serbar!!

í Söngvakeppnir fyrir 19 árum
Það voru náttúrulega mjög mikil mistök hjá þeim sem stjórna því hvenær er kosið að hafa það sama dag og Eurovision. En þetta lenti víst svona og fyrstu tölurnar í kosningum koma alltaf klukkan 10 og því verður ekki breytt svona auðveldlega :)

Re: Serbesk trukkalessa vann og Ísland í 13. sæti

í Söngvakeppnir fyrir 19 árum
Þetta er bara spurning hverjir eru vinir þínir og þetta hefur alltaf verið þannig. Við gefum okkar vinaþjóðum há stig og þau okkur vegna þess að þetta eru vinir okkar en einnig vegna þess að menningarheimarnir eru nokkuð líkir svo við fílum lögin þeirra. Þetta sama er uppi á teningnum á Balkanskaganum, munurinn er bara sá að þau eru fleiri en við :) Og líka að Balkanskaginn sendir bara tónlistafólk sem er mjög vel þekkt á öllum Balkanskaganum. Við höfum ekki oft náð því að senda einhvern sem...

Re: Nú er nóg komið

í Söngvakeppnir fyrir 19 árum
Það er mjög grátlegt þegar maður hugsar til þess að það vantaði bara 14 stig á að Eiríki tækist að fella Moldavíu (gellan sem var svo fátæk að hún átti ekki fyrir brók!). En núna á næsta ári verða öll norðurlöndin saman í undankeppninni og þá eigum við kannski einhvern séns á að komast upp í aðalkeppnina (þá til þess að lenda aftur í undankeppninni). Að vísu var bekkjasystir mín að segja að hún hafði heyrt að það ætti kannski að breyta þessari keppni árið 2009. Þá ætti að hafa...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok