París Hilton „lifir eins og nunna“ um þessar mundir í því skyni að komast hjá því að þurfa að fara í fangelsi. Hafa lögfræðingar hennar sagt henni að hún megi ekki haga sér illa ef hún ætli að forðast að fara í steininn.

Hefur hún sagt vinum sínum að hún sé hætt að drekka og fara í partí, og klæðist nú látlausum fötum sem þekja mun meira en þau efnislitlu sem hún hefur hingað til klæðst.

Þá hefur hún hegðað sér eins og góð stúlka og farið og heimsótt föður sinn á sjúkrahús.

Vinur dægurdrottningarinnar tjáði breska blaðinu The Sun: „Lögfræðingar Parísar sögðu henni að hún yrði að lifa eins og nunna. Þeir leggja hart að henni að hætta að hegða sér eins og óþekktarormur og sýna á sér hógværari hlið.“

París var dæmd í 45 daga fangelsisvist fyrir að rjúfa skilorð. Lögfræðingar hennar hafa áfrýjað dómnum og ætla að fá refsivistina stytta.

Til að svo megi verða þarf París að sýna dómaranum auðmýkt og að hún geti tekið tillit til annarra. Vinur hennar segir að hún þurfi einnig að vera með fjölskyldunni og taka upp heilbrigðari lífsstíl.

París á að mæta til afplánunar í Century-kvennafangelsið í Los Angeles 5. júní. Fregnir herma að hún sé farin að læra sjálfsvörn ef ske kynni að áfrýjuninni verði synjað og hún þurfi að sitja inni, en fangar í fangelsinu munu hafa hótað að láta hana fá fyrir ferðina.
——–
[mbl] alltaf þetta bölvaða vesen á henni :')