Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Paul

í Sápur fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Jú núna um daginn þá ætlaði Harold að keyra á Paul. Hann sagðist svo hafa mist stjórn á bílnum sínum (sem var ekki satt). Það var áður en Izzy fattaði þetta.

Re: Auka þættir?

í Gamanþættir fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Já ég er sammála þér að það er hálf fáranlegt að gera myndir eftir svona þáttum. En þetta var samt ein skíringin á því hvers vegna þættirnir í 10. seríu voru svona miklu færri en í öllum hinum. Ef hún kemur er ég viss um að fólk fer að sjá hana. Alveg sama hversu fáranlegt það væri að búa til þessa mynd.

Re: SteMax:)

í Sápur fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Já. Ég meina hún hefur sigrast á krabbameini áður og ég held að hún hugsi bara að hún geti gert það aftur. Og ef hún sigrast aftur á krabbanum en barnið er dáið vegna þess að hún fór í meðferð yrði hún alveg eiðilögð!

Re: Paul

í Sápur fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Hann ætlaði líka einhvern tíman að keyra á hann og svo einu sinni kom hann heim til hans og Paul fékk eitthvað kvíðakast og Harold gerði ekkert til þess að hjálpa honum. Hann horfði bara á Paul sem missti alveg meðvitund og gerði ekkert. Þá kom Izzy heim og þá fór hún að leggja saman tvo og tvo.

Re: Izzy!

í Sápur fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Já ég skil :)

Re: Izzy!

í Sápur fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Æi já! Smá mistök (roðn). Ég átti við Elle :)

Re: Auka þættir?

í Gamanþættir fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Sko það var alltaf sagt fyrst þegar það var verið að sýna 10 seríu að hún væri styttri vegna þess að það ætti að koma Friends the mowe síðar sem myndir þá flokkast sem þessir 4 þættir sem ekki voru með. Þá ættum við að fá að hitta þau aftur eitthvað síðar þegar börnin væru orðin eldri. En ég veit ekki hvort það sé það sem þær stöllur hafa verið að samþykkja eða ekki?

Re: SteMax:)

í Sápur fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Misti því miður af þessum þætti, en ég held að ég skilji hana alveg. Ég meina það hefur verið ósk hennar mjög legni að eignast barn. Ef hún færi í meðferð núna gæti eitthvað komið fyrir barnið hennar sem hún er búin að þrá svo lengi. Hún ætlar svo að fara í meðferð eftir fæðingu (ef það er hægt og síðast þegar ég vissi þá var það möguleiki í hennar stöðu og hún vissi það).

Re: Paul

í Sápur fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Harold reyndi náttúrulega að drepa hann oftar en einu sinni. Svo það er kannski ekkert skrítið að Paul sé ekkert barnanna bestur við Harold.

Re: Izzy!

í Sápur fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Sko hún byrjaði á þessu til þess að koma í veg fyrir að Lucy og Ned flyttu saman til Tansmaníu (þar sem mamma og bræður Lucy eiga heima). En Lucy varð eitthvað reið út í pabba sinn (man ekki hvers vegna?) og ákvað að flytja aftur til mömmu sinnar. Hún sagði svo Izzy og Paul að hún og Ned ætluðu að flytja saman. Paul var þá svo sár vegna þess að hann vill hafa hana hjá sér og að þau Izzy og Lucy séu fjölskylda. Izzy sem elskar (á sinn sérkennilega hátt) Paul út af lífinu vildi náttúrulega...

Re: Henry gamli dáinn. ;(

í Sápur fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Þetta var ekkert smá sorglegt!!! Ég er samt að bíða eftir því að Vanessa sprigi! Það er ekki spurningin hvort heldur hvenær.

Re: Slúður.. :0

í The Sims fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Þetta hefur greinilega verið mjög krassandi slúður!

Re: Slúður.. :0

í The Sims fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ég spyr núna enn og aftur: Hvers vegna er fólki inni á þessari síðu ef það hefur svona mikið á móti þessu áhugamáli!?! Ef þér finnst þetta svona gígantískt hallærislegt og ömulegt hvað ertu þá að gera hér? Ég legg bara til að þú finnir þér eitthvað annað áhugamál til þess að skoða, sem þér fellur við og sleppa því að vera að bögga aðra! Það eru til næg áhugamál hérna á huga svo fólki sem líkar ekki við Sims hefur nægar aðrar síður til þess að skoða! Svo legg ég til að þú biðjist afsökunnar á...

Re: Jólin sem aldrei komu

í Hátíðir fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Þetta er sæt mynd! Ég er að hugsa um að sleppa því að taka þátt í þessum rökræðum hérna um hvort þetta sé stelpa eða strákur. Enda er svarið komið svo þá þarf ekki að hugsa um það lengur :)

Re: Dúkkur

í Börnin okkar fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Já ég veit að Baby born dúkkan er hljóðlaus. Á heimilinu sem þessi sérstaka dúkka býr núna bjuggu fyrir tvær Baby born svo hún var sjálfkrafa úr leik ;) En já börn í dag eiga erfiðara með að finna sér eitthvað að gera, það byrjar alltaf söngurinn: Mér leiðist! En ætli það sé ekki frekar okkur að kenna en blessuðum börnunum ;)

Re: Skiptir þetta máli?

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Hehehehehe.

Re: Busines family

í The Sims fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Fín saga! Verður gaman að fylgjast með framhaldinu!

Re: Bestu Íslensku Myndirnar

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Ja ég hef nú aldrei lesið bókina enn það er mín reynsla að persónusköpun er alltaf meiri í bókum heldur í myndum og sagan kemur aldrei öll í myndinni eins og hún er í bókinni. Þannig er það alltaf svo ef maður hefur mynd sem er byggð á bók er alltaf mjög áhugavert að sjá hvað það er sem kvikmyndagerðamennirnir sleppa og svona. Enn ég hef séð Máfahlátur enn það er verulega langt síðan. Minnir að ég hafi séð hana í bíó. Enn ég man eftir þessum bandaríska leikara. Ég man hvað hann fór verulega...

Re: Steph!

í Sápur fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Ég varð svo glöð þegar læknirinn fann hjartsláttinn að ég var næstum farin að gráta! En ef handristshöfundar láta þetta fóstur fara verð ég rosalega reið við þá vegna þess að þessi hjón hafa alveg gengið í gegn um nóg núna!

Re: Serena og Connor!

í Sápur fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Ég varð SVO glöð þegar þau kystust loksins!!! ÉG var búin að bíða eftir þessum kossi alveg heillengi!!! Ég veit samt alveg að Scott er ennþá hrifin af henni enn hún er ekki hrifin af honum, auðvitað þykir henni vænt um hann sem vin en ekki sem kærasta svo það er betra að þau séu ekki saman.

Re: Harry Potter and the Goblet of fire

í Harry Potter fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ætli það hafi ekki verið myndin The Da Vinci Code?

Re: Harry Potter and the Goblet of fire

í Harry Potter fyrir 19 árum, 11 mánuðum
["He's not even that good-looking, they only like him because he's famous!"] Það var Hermeoni sem sagði þetta á bókasafninu þegar Ron talaði ekki við Harry.

Re: Izzy :S

í Sápur fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Þetta var bara smá skeina svo ég efast um að hún hafi dáið! Nema að hún hafi farið sér að voða einhvern vegin öðruvísi?

Re: Izzy

í Sápur fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Það er ekkert að henni! Hún hefur í mesta lagi fengið blóðnasir eða skurð á puttann! Þetta var ekkert mikið blóð og það láta allir eins og hún hafi verið skorin á púls eða eitthvað. Að vísu hef ég ekki séð þættina núna í viku svo ég veit ekki hvað hefur gerst núna nýlega.

Re: Alan

í Sápur fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Hann er einn af þeim sem þarf alltaf að koma sér inn í umræðuna, ef einhver er ekki að tala um hann þarf hann að sjá til þess að hann verði umræðuefnið! Hann er bara pirrandi og hann á ekki að ljúa að Revu!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok