Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Fóstureyðingar

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Hélt í vonina? Hvaða von mætti ég spyrja? Það var enginn von þar sem hún hefði bara fætt barnið til þess að þurfa að jarða það strax og það er helmingi verra en að fara í fóstureyðingu.

Re: Fóstureyðingar

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Nákvæmlega! Það eru allir sammála um að við verðum aldrei sammála um þetta málefni. Allir hafa sínar skoðannir um þessi mál og þær skoðannir eru misjafnar.

Re: Fóstureyðingar

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 11 mánuðum
[bara sleppa þvi að stunda óvarið í kynlif og passa það áður en mar fer út í kynlifið að vera velvarinn ef manneskjan er það ekki.. getur hun einfaldlega sleppt þvi að stunda þetta.. getur margt komið uppá þvi miður] Vá hvað þú ert föst í þessu viðhorfi þínu! Ertu nokkuð með hestagleraugu? Ég las það hér að ofan að þú ert orðin 18 ára. Ætlar þú virkilega að telja mér trú um að manneskja sem er orðin þetta gömul viti ekki að getnaðavarnir eru ekki 100% öruggar!?! Ég veit um börn sem komu...

Re: Fóstureyðingar

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ég heyrði einhvern tíman 4 mánuðir. En eins og þú segir þá er það ekki orðið að alvöru barni finnst manni. Það er varla farið að hreyfa sig og það sést mjög sjaldan á mæðrunum að þær séu ólettar á þessum tíma. Sumar vita ekki einu sinni af því að þær eru þungaðar og það ætti að segja manni eitthvað um stöðu fóstursins á þessum tímabili (sem má eyða því).

Re: Fóstureyðingar

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ég vil bara benda þér á að getnaðavarnir eru aldrei alveg 100% svo besta leiðin til þess að vera alls ekki óléttur er bara að sleppa því alveg að stunda kynlíf. En ég veit að það er ekki raunhæft að banna fólki að stunda kynlíf. Þannig að í hvert sinn sem maður stundar kynlíf er maður komin í ákveðin “áhættuhóp” um að verða óléttur :)

Re: Fóstureyðingar

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ég veit vel að þetta er þín skoðun og það er alveg rétt hjá þér allir meiga hafa sínar skoðannir. En ég held að maður geti ekki dæmt þetta nema maður hafi þurft að horfast í augu við ákvörðunina sjálfur. Þú segir sjálf að vinkona þín sé ný búin að fara í fóstureyðingu viltu þá meina að hún væri líkleg til þess að myrða barn sitt í framtíðinni? Ég veit að þú segir það ekki í upphafi en ég las það hérna fyrir neðan að þú tekur undir það álit hjá einhverjum að konur sem fara í fóstureyðingu...

Re: Fóstureyðingar

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Blessuð vertu, fóstureyðing er ekki það sama og myrða barn. Þar sem þetta er fóstur og fóstureyðingar eiga sér stað á fyrstu mánuðunum. Í mörgum tilfellum vita mæður ekki einu sinni af því að þær eru óléttar á þessum fyrsta tímabili (veit um móður sem misti bara alveg af óléttu tímanum). Fóstureyðingar hérna á vesturlöndum eru mun manneskjulegri en þær eru til að mynda í Kína, því þar er leifilegt að eyða fóstri allt fram á 9 mánuð (og þá erum við að tala um morð á börnum í mínum augum). [En...

Re: Hvað varð um Kalla Bjarna?

í Íslensk Tónlist fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Nú svo hann kann þá gott að meta.

Re: Hvað varð um Kalla Bjarna?

í Íslensk Tónlist fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Góður djókur hjá þér :)

Re: Barnið

í Sápur fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Hehehe, já satt segir þú. En eineggja tvíburar eru með sama dna hef ég heyrt.

Re: Barnið

í Sápur fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Jú eineggja tvíburar eru nefnilega með sama dna held ég. Ég hélt að systkyni af sama kyni hefðu sama dna, alltaf er maður að læra eitthvað nýtt :)

Re: Hvað varð um Kalla Bjarna?

í Íslensk Tónlist fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Já er það?

Re: Hvað varð um Kalla Bjarna?

í Íslensk Tónlist fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Þú ert bara hafsjór af fróðleik!

Re: Barnið

í Sápur fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Svo þá er nokkuð líklegt að hann Dylan eigi barnið. Samt þar sem Dyl og Gaddi eru bræður sem hafa sömu foreldra þá held ég að það sé í raun aldrei hægt að komast að því þar sem þeir deila sama DNA?

Re: Hvað varð um Kalla Bjarna?

í Íslensk Tónlist fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ja ekki mér greinilega :)

Re: Hin nýja ríkisstjórn

í Deiglan fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Já við verðum bara að vona og sjá hvað gerist.

Re: Barnið

í Sápur fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Jú það gæti náttúrulega verið. Ef að Dylan er ekki pabbinn var hún alla vegana mjög fljót að fatta það að hún væri ólétt.

Re: Hin nýja ríkisstjórn

í Deiglan fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Já þetta er því miður allt rétt hjá þér en það voru ekki bara Sjálfstæðismenn sem voru í stjórn og þeir voru aldrei með umboð á þessu ráðuneyti.

Re: Hvað varð um Kalla Bjarna?

í Íslensk Tónlist fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Hehehehe nei sjálfri fannst mér hann heldur ekki bestur af þeim sem voru í fyrsta hópnum en maður veltir þessu svona bara fyrir sér því að hann hefur svo gott sem bara horfið af sjónasviðinu á jafn skjótann hátt og hann byrtist.

Re: Hvað varð um Kalla Bjarna?

í Íslensk Tónlist fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Gæti verið?

Re: Hvað varð um Kalla Bjarna?

í Íslensk Tónlist fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Nei nú ertu að ljúa að mér. Eða það vona ég alla vegana þín og Kalla Bjarna vegna.

Re: Vangavelting

í Harry Potter fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Eins og fram hefur komið hér að ofan þá er munurinn bara kápumyndin. Það var víst gerðar tvær útgáfur svo að fullorðið fólk þyrfti ekki að skammast sín fyrir að vera að lesa “barnabækur” en einhverra hluta vegna hefur þetta ekki þurft hérna á Íslandi þar sem við fáum bara eina útgáfu. Enda held ég að fólk þurfi ekki að skammast sín fyrir að lesa hvernig sem bókin lítur út eða þó svo að bókmenntirnar eru markaðsettar fyrir yngri markaðshóp. Ef fólk tekur ástfóstri við lestur ætti það ekki að...

Re: Hin nýja ríkisstjórn

í Deiglan fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Já þessi stefnumál hljóma alltaf mjög vel á blaði það er bara vesenið með að koma þeim í framkvæmnd :)

Re: Hin nýja ríkisstjórn

í Deiglan fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Það er leiðinlegt að þú hafir svona miklar óbeytur á Sjálfstæðisflokknum. Svo sagðir þú að þú gætir aldrei kosið þann flokk sem færi í stjórnarsamband með honum. Þá held ég að þú eigir erfitt að kjósa :) Því að á einhverjum tímapunkti hafa flestir einhvern tíman unnið með Sjálfstæðisflokknum. En já það er vonandi að þessi stjórn haldi vel á spöðunum og ég vona bara að Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins núna um helgina reynist ekki sannspátt. En þar var talað um það að Ingibjörg Sólrún ætti eftir...

Re: Hin nýja ríkisstjórn

í Deiglan fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Ég stór efa að Sturla hafi nokkru sinni trassað sitt starf hvorki í þágu þjóðarinnar eða annars staðar. En hvað er það sem fer í taugarnar á þér í sambandi við samgönguráðuneytið?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok