Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Talan 4

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ég er nú engin sérfræðingur heldur, en ég hef þó heyrt þetta ;)

Re: Talan 4

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Já en það er líka oft talað um að talan 3 sé galdratala.

Re: Skondið

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ég veit, þegar ég sagði þeim heim þessa sögu hló enginn. En þetta var alveg hræðilega skondið þegar þetta gerðist.

Re: Feður passa ekki!

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Hehehe, geruðu það? Pabbi minn er nú búinn að vera giftur bráðum í 25 ár en hann er þó ennþá fær að versla fötin sín án þess að mamma þurfi endilega að vera með. En þar sem við búum úti á landi fer það oft svo að öll fjölskyldan veslar sér föt á sama tíma þannig að þau eru oft að þessu á sama tíma ;)

Re: Feður passa ekki!

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Já því miður tala sumir svona. En mér finnst réttara að segja bara það er engin að passa enda eru allir heima nema mamman ;)

Re: Harry Potter vs. Harry Potter-stækkunargleraugun mín

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Nákvæmlega. Líka bara til þess að sjá hvernig þeir sem búa til þessar myndir setja þær fram. Hvað finnst því merkilegt og svona. Svo er alltaf jafn áhugavert en jafn framt oft pirrandi að sjá hverju er slept ;)

Re: Bannað að kalla mig HarryPotter í rúminu

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Drengurinn er meira en bara ríkur, hann er líka ágætlega sætur og eflaust eitthvað var í hann (þó ég viti ekkert um það). Ég stór efa að það eitt að eiga peninga dragi stelpur í rúmið hjá strákum? Veit ekki betur en að þeir sætu strákar sem ég þekki fari bara auðvelt með það að fá stelpur með sér í rúmið og ekki veit ég til þess að þeir séu neitt ríkir.

Re: Bannað að kalla mig HarryPotter í rúminu

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Hann er ekki ómyndalegur strákur. Þó svo að ég færi aldrei með honum í rúmið (enda er hann MUN yngri en ég). Svo því ættu ekki sætir strákar að geta fengið stelpur með sér í rúmið?

Re: Bannað að kalla mig HarryPotter í rúminu

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Já maður skilur vel að drengurinn vilji ekki láta kalla sig Harry Potter af kærustunni eða sínum nánustu. Ég meina hann er ekki Harry þó svo að hann leiki hann. Ég held að flest allir leikarar líði svona, þeim er sama hvað aðdáendurnir segja en þegar það er komið að þeim nánustu þá vilja þeir eflaust vera kallaðir eigin nöfnum. Því margir leikarar eru alltaf að berjast við það að festast ekki í einhverri “ímynd” sem er á einhverri persónu sem þeir leika. Hvað húðina á honum varðar þá...

Re: Misskilið

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Hehehe, ég sá fyndu hliðina á þessu :)

Re: Ensk og íslensk bör

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Það eru öll börn misjöfn en ætli öll börn séu ekki að byrja að tala og labba um svipað leiti, sem sé eitthvað um 10 - 12 mánaða aldurinn. Sum eru auðvitað fyrr að þessu og önnur lengur. Þetta er bara spurning um normaldreifinguna (ef þú veist hvað það er).

Re: Kom að stelpu sem hafði skaðað Sig sjálf.....

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Jésús minn! Ég get rétt trúað því að þetta hefur verið hræðileg sjón! En það er gott að þið bræðurnir voruð þarna á ferðinni akkúrat á þessum tíma, þið hafið greinilega verið sendir á Guðsvegum þarna til hennar, eða alla vegana þú :)

Re: Talan 4

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Jáhá. Svo er verið að tala um að talan 3 sé galdratalan, við þurfum greinilega að endurskoða þá hugmynd ;)

Re: Feður passa ekki!

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Þetta er eflaust rétt hjá þér. Og hvað óhæfa feður varða þá eru því miður alls staðar í þjóðfélaginu fólk sem kemur óorði á hina og þessar starfsstéttir eða þjóðfélagshópa sem er mjög slæmt. En mín reynsla er nú sú að flest allir foreldrar (sama af hvaða kyni þeir eru) eru mjög hæfir til þess að vera foreldrar barna sinna.

Re: Smá hugleiðing

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Já ég veit en það er ekki það sem Harry ætlar að leggja fyrir sig. Auðvitað getur þú komið þér svona áfram eins og tvíburarnir í galdraheiminum sem og öðrum heimum. En það er einhvern veginn þannig að það eru ekki allir jafn fróir í hugsun og tvíburarnir ;)

Re: Feður passa ekki!

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Okey það er gott að það böggar þig ekki. En þetta fer þó í taugarnar á mér því að mér finnst að með því að segja að pabbinn sé að passa þá sé hann ekki alveg fullgildur á við mömmuna. En það er kannski bara óþarfa pirringur hjá mér?

Re: Harry Potter vs. Harry Potter-stækkunargleraugun mín

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Já en mér fannst samt vanta (sem Harry Potter nörd) söguna á bak við kagtusinn. En það er náttúrulega bara smámunasemi í mér ;)

Re: Harry Potter vs. Harry Potter-stækkunargleraugun mín

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Hann er náttúrulega orðinn glímukongur þarna, þó svo að það hafi ekki komið fram í myndinni. Frænka mín hefur alltaf verið á móti þessum leikara vegna þess að hann hefur aldrei verið nægilega feitur að hennar mati ;) Ég hef alltaf dáðst að leik hans eins og ég sagði áðan en ekki þarna, hann lék þetta bara illa!

Re: Harry Potter vs. Harry Potter-stækkunargleraugun mín

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ég held samt að maður eigi eftir að sjá allar myndirnar. Því maður er líka alltaf spenntur að sjá hvernig þeim hefur tekist til við að gera þetta að mynd. Eða það er alla vegana alltaf mín tilfinning. Ég er fyrir löngu búin að sætta mig við það að myndirnar geta aldrei verið eins góðar og bækurnar og mér finnst myndirnar bara ágætar. Þó fannst mér þessi hefði mátt vera betri (sérstaklega þar sem hvert einasta atriði var víst tekið upp 30 sinnum þá hefðu þeir sem bjuggu myndina til átt að...

Re: Harry Potter vs. Harry Potter-stækkunargleraugun mín

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Já ég er sammála þér það vanntaði það þegar það var ráðist á Hagrid og McGonagall, ég var mikið búin að hlakka til að sjá það á skjánum. En eins og Hagrid fékk McGonagall ekki mikin tíma á skjánum, frekar en söguþráuðurinn yfir höfuð. Það var farið allt of hratt yfir sögu. En það er satt hjá þér Luna var mögnuð og sú sem lék hana kom henni vel frá sér!

Re: Harry Potter vs. Harry Potter-stækkunargleraugun mín

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Auðvitað eru bækurnar svona grilljón sinnum betri en myndirnar en ég verð samt að segja að ég get ekki alveg verið sammála þér um að þær séu svona slæmar. En það er náttúrulega bara mín skoðun. En eins og þú segir þá er eflaust erfitt að gera öllum Harry Potter aðdáendum til hæfis með þessum myndum enda erum við ekki öll sammála hvernig hlutirnir eru í raun og veru ;)

Re: Feður passa ekki!

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Nei auðvitað ekki og líka kannski þar sem hún var með barnið alveg þar til í dag. En þau búa á sama stað (í sama húsi bara ekki í sömu íbúð) svo ég held að það sé ekkert sérstakt sísdem á þessu ennþá?

Re: Harry Potter vs. Harry Potter-stækkunargleraugun mín

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Já hann kom fram en það var ekkert verið að segja frá illindunum sem voru komnar upp á milli hans og fjölskyldunnar. Hann var bara þarna og það var ekki einu sinni reynt að sýna fram á þessi illindi. Ef leiksjórinn hefur verið að sýna það með því að láta hann vera í þeim atriðum sem hann var í án þess að segja nokkurn hlut þá kom það samt ekki alveg til skila.

Re: Harry Potter vs. Harry Potter-stækkunargleraugun mín

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Já þetta atriði á milli þeirra Harrys og Duley var mjög illa gert frá upphafi til enda. Leikarinn sem leikur Duley var bara lélegur, en hann hefur alltaf komið sínum karagter vel til skila að mínu mati. En í þessari mynd var hann bara ömulegur!

Re: 1 af dúllunum mínum

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Vá hvað þessi er sæt!!!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok