Ég þýddi þetta af www.mugglenet.com – og þetta eru helstu atvikin þar sem talan 4 kemur fyrir í bókunum. Afsakið seinkunina..

Harry Potter og Viskusteinninn

Harry býr hjá Dursleyfjölskyldunni á Runnaflöt 4
Í Runnaflöt 4 eru 4 svefnherbergi.
Áður en Vernon fór með Petuniu, Dudley og Harry á klettinn til að flýja Hogwartsbréfin keypti hann poka af flögum og 4 banana.
Frú Weasley pakkaði 4 samlokum handa Ron fyrir fyrstu ferð hans með Hogwartshraðlestinni.
Samkvæmt Hagrid mega bara 4 fara saman í bát frá lestarstöðinni í Hogsmeade til Hogwarts.
Það eru 4 heimavistir í Hogwarts: Gryffindor, Ravenclaw, Hufflepuff og Slytherin, nefndar eftir 4 stofnendunum, Godric Gryffindor, Rowena Ravenclaw, Helga Hufflepuff og Salazar Slytherin.
4 fóta stóll er notaður við flokkun 1. árs nema.
Næstum hauslausi Nick segist ekki hafa borðað í næstum 400 ár (þetta er villa því að á Hrekkjavökunni árið eftir á hann 500 ára dánarafmæli)
Svifgaldurinn (Wingardium Leviosa) lyftir fjöðrinni hennar Hermione u.þ.b. 4 fet frá skrifborðinu hennar.
Harry lenti á jörðinni á 4 fótum eftir að hann gleypti næstum gullnu eldinguna.
4 vinir Charlies Weasleys komu að ná í Norbert í Hogwarts.
Í Quidditch eru notaðir 4 boltar – 2 rotarar, ein tromla, og ein elding.
Í Stóra salnum eru 4 löng heimavistarborð.
Herbergi Harrys, Rons og co. í Gryffindor turni er með four poster beds. (himnasæng, boðskapurinn með þessu skilar sér ekki á íslensku)


Harry Potter og Leyniklefinn


Það er rifist við morgunverðarborðið á Runnaflöt 4.
Harry saknar þess að sofa í four poster rúminu sínu, (himnasæng) í Hogwarts, ásamt mörgu öðru.
Quidditch er sagt vera vinsælasta íþrótt galdraheimsins með sex háum markstöngum, fjórum fljúgandi boltum og fjórtán manns á kústum.
Harry vorkennir Dobby vegna húsálfaþrælkun hans, og segir að honum hafi fundist slæmt að þurfa að þola Dursleyfjölskylduna í fjórar vikur í viðbót.
Þegar Harry er lokaður inní herberginu sínu eftir ‘eftirréttarslysið,’ veltir hann því fyrir sér hvort að hann verði á lífi eftir 4 vikur til að fara til Hogwarts, og hvort einhver myndi taka eftir því að hann kæmi ekki.
Það eru 4 eða 5 strompar á þaki Hreysisins (e. The Burrow)
Eftir að Harry er bjargað af tvíburunum og Ron, verða morgunverðardiskarnir 4 hreinir á furðulega stuttum tíma.
Frú Weasley reyndi að fá Harry til að borða fjóra kúffulla diska í öllum matartímum.
Í Hogwarts, svifu kerti yfir heimavistarborðunum fjórum.
Á hverju ári skipti flokkunarhatturinn nemendum niður á 4 heimavistir.


Harry Potter og Fanginn frá Azkaban


Nýji sprotinn hans Rons er 14 tommu langur og búin til úr eik.
Dudley borðaði 4 sneiðar af böku.
Eitt af heimaverkefnum Harrys fyrir sumarið var að skrifa ritgerð um nornabrennur á 14. öld.


Harry Potter og Eldbikarinn


Kokkur Riddlefólksins fékk sér fjögur sjerríglös á meðan hann sagði frá atburðunum í Riddlehúsinu.
Harry verður 14 ára, og byrjar sitt 4. ár í Hogwarts.
Harry fær sendar fjórar afmæliskökur frá, Ron, Hermione, Hagrid og Siriusi.
Tungan á Dudley verður 4 fet á lengd eftir að hann borðar Tröllatungukaramellu frá Fred og George.
Fjórum rúmum var troðið inn í herbergið hans Rons fyrir hann, Harry, Fred og George.
Galdramaður sást á tjaldstæðinu fyrir heimsmeistaramótið í plus-fours. (Plus-fours eru buxur. Ég get ekki útskýrt almennilega, mynd: http://www.fashion-era.com/images/1914-1950/ed8x20.jpg
Annað tjaldið sem þau sváfu í eftir heimsmeistarakeppnina var með fjórum kojum.
Harry og Hermione fara með Weasleyfjölskyldunni á 422. heimsmeistarakeppnina í Quidditch.
Fjórir meðlimir Robertsfjölskyldunnar héngu í lausu lofti og var snúið af Drápurum.
Frú Weasley kaupir Almenna Álagabókin, 4. stig, fyrir Ron, Hermione og Harry.
Skröggur er nýji kennarinn í Vörnum gegn Myrku Öflunum, sem þýðir að Snape hefur verið neitað um stöðuna 4. árið í röð.
Þegar Harry er á leiðinni í ugluturninn, hittir hann Peeves á fjórðu hæðinni, sem reynir að hvolfa yfir hann vasa.
Skröggur leggur Stýribölvunina fjórum sinnum í röð á Harry, þar til hann nær að verjast henni algjörlega.
Harry, Ron og Hermione standa í fjórðu röð fyrir utan Hogwarts, þegar þau taka á móti krökkunum úr Beauxbatons og Durmstrang.
Filch bætir fjórum stólum við kennaraborðið kvöldið þegar Dumbledore skýrir frá reglum þrígaldraleikanna.
Eldbikarinn velur 4 meistara til að keppa á þrígaldraleikunum: Viktor Krum, Fleur Delacour, Cedric Diggory og Harry Potter.
Skröggur heldur að einhver hafi sett nafn Harrys í eldbikarinn sem fulltrúa fjórða skólans, til að rugla hann.
Fjórum sumrum áður, á ellefta afmælisdeginum hans, hafði hann farið til Ollivanders að kaupa sprota.
Í fyrstu þrautinni eru fjórir drekar, einn fyrir hvern keppanda.
Fyrsta þrautinn er 24. nóvember.
Harry dregur dreka nr. 4, Ungverska Gaddhalann.
Karkaroff gefur Harry 4 í einkunn fyrir fyrstu þrautina.
Önnur þrautin er 24. febrúar.
Aðeins 4. árs nemar og eldri mega fara á Jólaballið. (það má bjóða yngri nemendum)
Hagrid segir Ritu Skeeter að hann hafi aldrei þurft að skamma Harry á þessum fjórum árum hans í Hogwarts.
Cho Chang er alltaf í fylgd með 4-5 stelpum.
Viktor Krum segir Hermione að það séu fjórar hæðir í Durmstrang kastalanum.
Einhyrningar fá horn um 4 ára aldur.
Það þarf að bjarga fjórum manneskjum úr vatninu í annari þrautinni.
Sirius fer leiðina að felustaðnum sínum auðveldlega, með fjórum loppum.
Þriðja og síðasta þrautin er þann 24. júní.
Fjórir húsálfar bera silfurbakka til Rons í eldhúsinu í Hogwarts.
Grá ugla lendir fyrir framan Hermione, elt af fjórum öðurm uglum.
Harry fer “ofaní” þankalaug Dumbledores, og sér 4 manneskjur færðar inn í réttarsal í ráðuneytinu. Þau eru sett í 4 stóla með keðjum, og eru yfirheyrð, meðal annars af Barty Crouch eldri.
Four point spell: (áttavitagaldurinn) bendir sprotanum í norður.
Frú Weasley var skömmuð af Feitu konunni fyrir að koma inn klukkan 4 um nótt þegar hún var í Hogwarts.
Það voru fjórir verðir við jaðar völundarhússins, McGonnagal, Skröggur, Hagrid og Flitwick.
Sfixinn endurtók síðustu fjórar línurnar úr gátunni fyrir Harry.
Voldemort talar um að fjórum árum áður hafi Quirrel gefið honum tækifæri á að snúa aftur.
Ollivander skrifaði Dumbledore, fjórum árum áður, og tilkynnti honum að Harry Potter hafði keypt hinn sprotann sem var með fjöður úr Fawkes.



Harry Potter og Fönixreglan

Það voru 4 vikur síðan Harry hafði farið frá Hogwarts, og hann hafði verið alveg einangraður frá galdraheiminum síðan.
Harry stríðir Dudley á því að þurfa 4 stráka með sér til að lemja 10 ára krakka.
Fjórða uglan kom inn um reykháfinn í eldhúsinu með bréf frá Siriusi til Harrys.
Fjórða kvöldið eftir að Harry sendi Hedwig út til að finna upplýsingar fyrir hann, kom Vernon og sagði að þau væru að fara út.
Þegar hópur af galdramönnum kom til að ná í Harry, var hann mjög meðvitaður um að hann hafði ekki greitt sér í 4 daga.
Eftir að hafa verið lokaður inní í herberginu sínu í 4 daga, í vondu skapi, var herbergið í rúst.
Fjögur stopp í viðbót, sagði herra Weasley mjög spenntur þegar þeir tóku neðanjarðarlestina í ráðuneytið.
Eric, öryggisstarfsmaðurinn í ráðuneytinu, sá að sprotinn hans Harrys hafði verið í notkun í 4 ár.
4-5 nornir stíga útúr lyftunni um leið og nokkrir minnismiðar fljúga inn.
George rifjar upp hvað kom fyrir síðustu fjóra Varnir gegn myrku öflunum kennara, og segir að það sé aðalástæðan fyrir vandræðunum við að ráða nýja kennara.
Frú Weasley fagnar því að Ron sé fjórði Umsjónarmaðurinn í fjölskyldunni..
Ginny er nú 4. árs nemi.
Harry man að flokkunarhatturinn notar oft sönginn til að lýsa eiginleikum heimavistanna fjögurra.
Harry gleymir að setja sýróp í Slökunardrykkinn sinn og heldur áfram í 4. línuna.
Á meðan að Harry er í eftirsetu hjá Umbridge laumast hann til að horfa á leikmannaprufurnar, og finnst fjórða manneskjan standa sig hræðilega.
Eftir að hafa þekkt Percy í 4 ár, er Harry hissa á því að hann telji hann vera ofbeldisfullan og ekki í jafnvægi.


Harry Potter og Blendingsprinsinn


Harry sat í stól við gluggann sinn í 4 klukkustundir, og beið eftir Dumbledore.
Frú Weasley segir við Harry að hún haldi að Ron hafi stækkað um 4 tommur síðan hún keypti skólaskikkjur á hann síðast.
Hópur af 4. árs stelpum flissaði og hvísluðust á fyrir utan klefann þeirra Harry, Lunu og Nevilles í Hogwartslestinni.
Kennslustofan í vörnum gegn myrku öflunum er fjórum hæðum neðar en Gryffindorturninn.
Fjórir Slytherinnemar og fjórir Ravenclawnemar komust á M.U.G.G.astig í töfradrykkjum.
Prófessor Slughorn var farinn að tala um frábæra hæfileika Harrys í töfradrykkjum eftir 4 tíma. (þökk sé prinsinum auðvitað
Flestir í 4. hópnum sem vildi komast í Quidditchlið Gryffindors komu ekki með kústa.
Cormac McLaggen varði 4 víti af 5 í prufum fyrir gæslumann.
Ron varði 5 víti af 5 en sagði Hermione síðar að hann hefði verið viss um að hann myndi klúðra 4. vítinu.
Þegar Hagrid sagði þeim að Aragog væri að deyja, fór Harry að hugsa um nauma undankomu þeirra Rons 4 árum áður.
Harry hafði séð nistið með bölvuninni í Borgin & Burkes 4 árum áður.
Prófessor McGonnagal vildi tala við þau fjögur (Harry, Ron, Hermione og Leanne) um hvað kom fyrir Katie Bell.
Fyrsta hálftímann í Quidditchleiknum hafði Ginny skorað 4 af 6 mörkum Gryffindor.
Slughorn kynnir Harry fyrir Eldred Worple, sem leggur til að Harry eyði 4-5 klukkutímum með honum við að skrifa ævisögu Harrys.
Fjórir yfirmenn heimavistanna þurftu að hrópa til að fá hljóð í fyrsta tilflutningstímanum.
Susan Bones skildi helminginn af sér eftir þegar hún reyndi tilflutning í fjórða sinn.
Harry og Ron þurftu að fara krókaleið uppí Gryffindorturn því að Peeves límdi aftur hurð á fjórðu hæð.
Tom Riddle kom klukkan 4 þegar hann heimsótti Hepzibah Smith með tilboð frá Hr. Burke í brynju gerða af svartálfum.
Harry gat ekki tekið tilflutningsprófið sitt með Ron og Hermione, því að hann yrði ekki 17 ára fyrr en eftir 4 mánuði.
Dumbledore segir Harry að fyrir fjórum árum síðan hafi hann gefið honum sönnun á því að Voldemort hafi búið til helkross.
Tveimur helkrossum hefur verið eytt, og Dumbledore telur að fjórir helkrossar séu eftir, sem og hlutinn sem er inní líkama Voldemorts.
Dumbledore heldur að Slytherinnistið og Hufflepuffbikarinn séu helkrossar 3 og 4.
Fjórir hlutir frá fjórum stofnendum Hogwarts eru eitthvað sem Voldemort fyndist frábært að hafa sem helkrossa.
Harry fattar að ef Gryffindor tapar gegn Ravenclaw með 100 stiga mun eða meira, endi Gryffindor í 4. sæti.
Snape setur Harry í eftirsetu og veltir honum uppúr þeim möguleika að Gryffindor lendi í 4. sæti í Quidditchmótinu.
Dumbledore drekkkur hálfan fjórða bikarinn af drykknum í hellinum, þá dettur hann í jörðina og vill hætta.
Fjórar manneskjur í svörtum skikkjum ryðjast inn þar sem Malfoy er að hóta Dumbledore.
Snape hrópar að James hafi aldrei þorað að ráðast á hann nema það væru fjórir á móti einum.

Kv Prongsie
ehhh… jingle bingle :Ð