Aðvörun til karlmanna Lögreglan vill hvetja karlmenn, einkum þá sem stunda næturlíf, ráðstefnur, jólahlaðborð og knæpur, til að vera vel á verði og afar varkára þegar kvenfólk býður upp á drykk.

Komið er á markaðinn stórhættulegt efni, svonefndur “bjór” og er fjöldi kvenna farinn að nota efnið til þess að herja á menn sem eiga sér
einskis ills von.

Venjulega er efnið í fljótandi formi og fæst nú næstum hvar sem er. Það er til á flöskum, dósum, úr krana og jafnvel í stórum kútum. Kvensniftirnar nota “bjór” í samkvæmum og á börum til þess að véla karlkyns fórnarlömb heim með sér og í bólið.

Venjulega nægir konunni að fá karlmanninn til að innbyrða nokkrar einingar “bjórs”og bjóða honum síðan heim til kynlífs án nokkurra skuldbindinga.
Þessar aðfarir duga til þess að gera karlmenn gersamlega bjargarlausa. Eftir neyslu margra “bjóra” kemur iðulega fyrir að menn falla í þá
freistni að stunda kynlíf með kvenfólki sem þeir að öllu jöfnu myndu aldrei líta á.

Að lokinni “bjórdrykkju” vakna karlmenn oft án þess að muna glöggt hvað gerðist nákvæmlega kvöldið áður, gjarna þó með sterkt hugboð
um að eitthvað slæmt hafi átt sér stað. Stundum kemur það fyrir að þessir ólánsmenn eru dregnir inn í þekkta svikamyllu sem kallast “samband.”

Vitað er um tilfelli þar sem kvenfólki hefur tekist að hneppa karlmenn í langvarandi og alvarlega útgáfu þrældóms, refsinga og niðurlægingar sem kallast “hjónaband”. Að því er virðist eru karlmenn líklegri til að verða fórnarlömb þessarar svikamyllu eftir að kvenmaðurinn er búinn er að neyða í þá “bjór” og lofa kynlífi.

Vinsamlegast sendið þessa aðvörun til allra karlmanna sem þið þekkið.

Ef þið eruð þegar fórnarlömb þessa hræðilega nýja efnis, “bjórs”, og kvenþrjótanna sem beita því er rétt að benda á sérstaka stuðningshópa karlmanna sem búið er að koma á fót á flestumþéttbýlisstöðum, en í þessum hópum má ræða sín vandamál á opinskáan og ærlegan hátt við karla
sem margir hverjir hafa lent í þessum hremmingum. Finna má þessa stuðningshópa í símaskrá víðast hvar undir heitinu …… Golfklúbbur.

Hlær einhver? ahah alla vega ég :,)
Fékk þennan sendan í pósti nýlega.

Þið sem viljið bjarga ykkar saklausa skinni þá get ég bent á GKG http://www.gkg.is