23. ágúst 2005
SAMÞYKKT
um kattahald í Reykjavík.
1. gr.
Kattahald í Reykjavík sætir eftirfarandi takmörkunum.
Samkvæmt lögum um dýravernd nr. 15/1994 fer Umhverfisstofnun með mál er varða
dýravernd.
2. gr.
Stjórnsýsla.
Umhverfissvið Reykjavíkurborgar ber að sjá um að framfylgt sé ákvæðum samþykktar
þessarar í umboði heilbrigðisnefndar Reykjavíkurborgar.
Öllum ákvörðunum sem umhverfissvið tekur á grundvelli samþykktar þessarar má skjóta
til heilbrigðisnefndar til úrskurðar. Málskotsrétt eiga þeir sem hafa lögvarinna hagsmuna að
gæta vegna þeirrar ákvörðunar og aðgerða sem um ræðir.
3. gr.
Merking katta.

Allir kettir eldri en fjögurra mánaða skulu örmerktir af dýralækni skv. stöðlum Alþjóða
staðlaráðsins (ISO 11784 eða 11785). Eigendur katta skulu strax að lokinni örmerkingu katta
koma upplýsingum um númer örmerkis og nafn og kennitölu eigenda til umhverfissviðs
Reykjavíkurborgar sem heldur skrá um örmerkta ketti í Reykjavík.
Kettir skulu einnig bera hálsól með upplýsingum um heimilisfang eiganda og símanúmer.
4. gr.
Gelding fresskatta.
Gelda skal alla fressketti sex mánaða og eldri sem ganga lausir utandyra.
5. gr.
Ormahreinsun.
Eiganda eða umráðamanni kattar er skylt að láta ormahreinsa kött sinn árlega frá fjögurra
mánaða aldri. Til ormahreinsunar katta gegn spóluormum skal nota ormalyf sem Lyfja-
stofnun hefur viðurkennt til þeirra nota.
Eigandi eða umráðamaður skal geyma hreinsunarvottorð í þrjú ár og framvísa því við
eftirlitsaðila ef óskað er.
6. gr.
Kattahald í fjöleignarhúsum.
Um kattahald í fjöleignarhúsum fer að 13. tl. A-liðar 41. gr. laga nr. 26/1994 um fjöl-
eignarhús.
Óheimilt er að halda ketti í fjöleignarhúsum ef kattahaldið sannanlega veldur eða við-
heldur sjúkdómum hjá íbúum.
Page 2
Nr. 794
23. ágúst 2005
7. gr.
Óheimilir staðir.
Ekki má hleypa köttum inn í húsrými eða á lóðir sem fjallað er um í fylgiskjali 3 með
reglugerð um hollustuhætti nr. 941/2002.
8. gr.
Ónæði og óþrif af völdum katta.
Ketti skal halda þannig að ekki valdi hávaða, ónæði, óhollustu eða óþrifnaði.
Ef köttur veldur nágrönnum eða öðrum ítrekuðu ónæði, óþrifum eða tjóni, þá ber eiganda
eða forráðamanni að leita leiða til að koma í veg fyrir slíkt.
9. gr.
Handsömun katta.
Heilbrigðisnefnd Reykjavíkurborgar fer með eftirlit með framkvæmd samþykktar þess-
arar. Starfsmenn umhverfissviðs Reykjavíkurborgar starfa í umboði nefndarinnar og er sem
slíkum heimilt að fanga í búr ketti í eftirfarandi tilfellum:
a. Sé köttur ómerktur, hvort sem er með hálsól eða örmerki.
b. Sé ítrekað kvartað undan ágangi katta á tilteknu svæði.
c. Sé köttur innandyra hjá nágranna í leyfisleysi, á óheimilum stað sbr. 7. gr. eða án sam-
þykkis í fjöleignarhúsi, sbr. 6. gr.
Ketti sem fangaðir eru skv. tölulið a. í 1. mgr. og ketti sem haldnir eru í fjöleignarhúsum
án samþykkis meðeigenda, sbr. 6. gr., skal færa í sérstaka kattageymslu. Öðrum köttum skal
sleppa lausum en eigendum eða umráðamönnum katta tilkynnt um handsömunina og ástæður
hennar. Ítrekuð handsömun á köttum vegna ónæðis telst brot á 8. gr. samþykktarinnar og
getur umhverfissvið bannað viðkomandi eiganda eða umráðamanni að halda kött í lögsagnar-
umdæmi Reykjavíkur. Köttur sem ítrekað hefur verið handsamaður skal færður í katta-
geymslu.
Eigandi eða umráðamaður kattar sem fluttur eru í kattageymslu skal greiða hand-
sömunar-, fóður- og vistunargjald samkvæmt gjaldskrá um kattahald í Reykjavík áður en hann
er afhentur á ný. Sé köttur óörmerktur skal eigandi hans greiða fyrir örmerkingu kattarins
áður en hann er afhentur og fær gegn því beiðni sem nýta má hjá dýralækni til greiðslu fyrir
örmerkingu. Ef kattar er ekki vitjað innan einnar viku frá handsömun, er heimilt að ráðstafa
honum til nýs eiganda eða selja hann fyrir áföllnum kostnaði. Að öðrum kosti skal hann
aflífaður.
Sé einsýnt að kattahald samræmist ekki ákvæðum samþykktar þessarar getur umhverfis-
svið Reykjavíkurborgar bannað viðkomandi kattahald. Skal handsömuðum ketti þá ráðstafað
til nýs eiganda, hann seldur fyrir áföllnum kostnaði eða hann aflífaður.
10. gr.
Tillit til fuglalífs á varptíma.
Eigendum og umráðamönnum katta ber að taka tillit til fuglalífs á varptíma, t.d. með því
að hengja bjöllu á ketti og eftir atvikum takmarka útiveru katta.
11. gr.
Lögregluaðstoð.
Umhverfissvið getur ef þörf krefur leitað atbeina lögreglu við að framfylgja samþykkt
þessari og ákvörðunum teknum á grundvelli hennar.
Page 3
Nr. 794
23. ágúst 2005
12. gr.
Refsiviðurlög.
Um brot á samþykkt þessari skal fara samkvæmt ákvæðum laga nr. 7/1998 um holl-
ustuhætti og mengunarvarnir.
13. gr.
Lagagrundvöllur.
Samþykkt þessi staðfestist hér með skv. 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og
mengunarvarnir, með síðari breytingum og öðlast gildi þegar við birtingu og fellur þá úr gildi
samþykkt um kattahald í Reykjavík nr. 622/1999.
14. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
Ákvæði 9. gr. er varða ómerkta ketti taka gildi þrem mánuðum eftir gildistöku sam-
þykktarinnar.
Umhverfisráðuneytinu, 23. ágúst 2005.
F. h. r.
Ingimar Sigurðsson.
Sigurbjörg Sæmundsdóttir.
Just ask yourself: WWCD!