Það sem DV gerir er að höfða til verstu kennda í manninum. DV vill fá fólk til að hata, fyrirlíta og misskilja, vegna þess að það selur. Þetta blað er ógeðslegur horbjóður, og það er ekki leyst með því að skipta um ritstjóra, alls ekki. Þetta blað er til einmitt til þess að vera viðbjóðslegur horbjóður og til að ganga fram af fólki. Þess vegna liggur vandamálið í raun ekki hjá ‘blaðamönnunum’, heldur hjá fólkinu; og sjúkdómar fólksins eru alltaf ólæknanlegir. DV er því miður komið til að vera.