Tja, ef ég væri að leiðrétta allar villur væri ég allan dag. Þú hefur t.d. mjög algenga málfræðivillu í þessum pósti, ‘fólk eru ólík’, þar sem fólk er eintala og þetta ætti að vera ‘fólk er ólíkt’ - en ég geri ekki athugasemdir við þannig (þetta er undantekningartilfelli. :P) Hinsvegar, ef ég sé eitthvað verra, eitthvað sem fólk hefur bara lært rangt og er að komast upp með, get ég ekki setið á mér. Þetta inniheldur þágufallssýki, ‘mér hlakkar’, villimennsku eða það að segja ‘ég vill’, og...