Þetta var nú bara eitt besta skaup sem ég hef séð. Ég held líka að ef þetta hefðu verið sömu atriði með sömu leikurum, bara samið af körlum og leikstýrt af karli, þá þætti ykkur þetta ekki vera svona slæmt.
Ohhh. Þoli ekki svona fólk. En það er samt þannig að ef varan er vitlaust verðmerkt á maður að fá hana á því verði sem hún var verðmerkt. Maður sem ég veit um var einhverntíman að kaupa sér skó í InterSport en þeir voru í vitlausri hillu. Hann sagði bara “Annað hvort fæ ég skóna á þessu verði eða ég kæri ykkur” og að sjálfsögðu fékk hann skóna ódýrari og græddi einhvern 3000 kall.
Ég held það já. Ég var einun sinni að vinna í búð sem bróðir minn átti og vinkona mömmu kom að versla. Síðan sagði ég mömmu að hún hefði komið og hvað hún hefði verslað og bróðir minn sagði að það væri bannað.
Það er ekki einu sinni hægt að líkja þessu saman. Liverpool er félagslið, það er sem sagt ekki bundið við einvherja þjóð. Unnur Birna keppti fyrir Ísland, og þess vegna er meira en rökrétt að óska henni til hamingju fyrir hönd allrar þjóðarinnar.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..