Þannig er mál með vexti að ég var að leika mér með fótboltann minn inni mjög svo sakleysislega, kemur þá stóra systir mín til mín og reynir að ná boltanum af mér og byrjar ad sparka í hann.
Sparkar hún þá boltanum í jólatréð og brýtur nokkrar kúlur.
Þá fer Mamma að hundskammma mig og segja mér að vera ekki með boltann inni, en segir ekkert við systur mína.

Mér finnst þetta persónulega óréttlátt af mömmu minni að skamma bara mig því að það var ekki ég sem braut kúlurnar.