Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Mig vantar hjálp!!! Eldbikarinn...

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Beinum föður Voldemorts, ekki Wormtails (Peters).

Re: Skuggasjónaukinn.

í Bækur fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég myndi ekki kalla þetta stafsetningarvillu, en ég spurði bara því ég hélt þú værir að segja að það væru fleiri en þrjár eða eitthvað, en ég hélt að það væru þrjár, fyrir utan það að það var ósamræmi í þessu hjá þér. Ekkert illa meint samt.

Re: Sjálfviljugur drápari?

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Kom það einhvers staðar fram að einhver hefði farið til Azkaban “í hans stað”? Man ekki eftir að hann hafi sagt til einhverra annarra, eins og Karkaroff.

Re: Flugferð Hedwigs

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Uh, felur lýsingarorðið ágætt í sér einhverja andstæðu við lýsingarorðið fyndið? Af hverju “en”?

Re: Sjálfviljugur drápari?

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Það er náttúrulega möguleiki líka, að Karkaroff sé sá sem Voldemort grunaði að hefði yfirgefið sig fyrir fullt og allt, en Snape sá sem Voldemort taldi of blauðan til að snúa aftur til sín. Þegar ég hugsa út í það nánar, finnst mér næstum líklegra að það sé þannig. Fyrst fannst mér það ekki geta verið, því að: Nr.1: Karkaroff sagði til hinna eftir að Voldemort hvarf, svo Voldemort hefði ekki vitað það. Án þess að vita það, hefði hann líklega ekki álitið Karkaroff svikara og þar af leiðandi...

Re: Sjálfviljugur drápari?

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Já, það er satt, eftir því sem líður líður lengra frá því maður las síðustu minnkar eftirvæntingin eftir næstu, svo biðin verður auðveldari, maður fer bara að hugsa um annað, en áhuginn snýr aftur af fullum krafti þegar forvitni manns er svalað.

Re: Skuggasjónaukinn.

í Bækur fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég sagði aldrei að þú hefðir ekkert vit á bókum, né dró það í efa á nokkurn hátt, var bara að benda á þetta atriði. En satt að segja fannst mér Sam eiginlega vera meira “potturinn og pannan”, ekki bara vegna þess að hann sá um eldamennskuna, heldur fannst mér meira sagt frá áhyggjum hans og hugsunum heldur en Fróða, allavega eftir að föruneytið sundraðist. En eins og ég segi, þá get ég ekkert sagt um Pullman bækurnar því ég hef ekki lesið þær.

Re: OotP

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Já, svo er það náttúrulega möguleiki líka, að Karkaroff sé sá sem Voldemort grunaði að hefði yfirgefið sig fyrir fullt og allt, en Snape sá sem Voldemort taldi of blauðan til að snúa aftur til sín. Þegar ég hugsa út í það nánar, finnst mér næstum líklegra að það sé þannig. Fyrst fannst mér það ekki geta verið, því að: Nr.1: Karkaroff sagði til hinna eftir að Voldemort hvarf, svo Voldemort hefði ekki vitað það. Án þess að vita það, hefði hann líklega ekki álitið Karkaroff svikara og þar af...

Re: Skuggasjónaukinn.

í Bækur fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Nei það sem ég var að meina, er að fyrst er sagt frá út frá Fróða, síðan þegar þeir eru orðnir einir tveir, er eiginlega Sam notaður sem sögumaður. Á meðan Pippin og Merry eru einir, þá er annar hvor þeirra notaður, man ekki hvor, síðan verða þeir viðskila þegar annar fer til Minas Tirith með Gandalfi (var það ekk Pippin?) og þá eru báðir sögumenn. Aragorn er náttúrulega aðalpersónan af þeim þremenningum, honum, Legolas og Gimla, en mér fannst samt stundum vera skrifað út frá þeim...

Re: kennari

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Jamm, ætti kannski frekar að vera Arasaka, um Arasöku, því þetta er eitt orð, ef þetta væru tvö væri það líklega Öru söku…

Re: Skuggasjónaukinn.

í Bækur fyrir 22 árum, 9 mánuðum
“Hringadróttinssaga og Harry Potter. Höfundar þessara verka vissu um hvað þeir ætluðu að skrifa.” “Það er bara að þegar er verið að skrifa stórverk verður maður að skrifa um eina til tvær persónur. Ekki fleiri.” Hvað eru margar aðalpersónur í Hringadróttinssögu? Og það er sagt frá frá sjónarhorni þeirra allra næstum því.

Re: Skuggasjónaukinn.

í Bækur fyrir 22 árum, 9 mánuðum
“sérstaklega vil ég segja að allar þrjár bækurnar eru jafn góðar. Það er nákvæmlega ekki neitt verra við fyrstu en aðra eða aðra við fjórðu.” Fjórðu? Ég hef ekki lesið þessar bækur, geri það fljótlega ef ég má vera að.

Re: kennari

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Já, ég er sammála Arasaka (Örusöku?), Lupin er uppáhaldskennarinn minn og persónan mín yfir höfuð, en Barty Crouch yngri er of mikill snillingur til að vera hunsaður í þessu sambandi, mér finnst sorglegt hvernig fór fyrir honum, hann átti að geta nýst sem vitni að minnsta kosti. Svo er það Cedric, en Bill og Charlie eru líka skemmtilegir, að ógleymdum Weasley tvíburunum, sem eru náttúrulega ekkert nema snillingar. Ef ég mætti nefna stelpu úr fimmtu bókinni myndi ég gera það, en eftirnafn...

Re: Sjálfviljugur drápari?

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég get sagt þér það fyrir mitt leyti, að þetta er erfitt, en maður verður bara að þrauka.

Re: OotP

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Nei nei, ég móðgaðist ekkert ef þú heldur það, þetta eru geðveikar bækur og vel þess virði að vera lesnar oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að mínu mati.

Re: Sjálfviljugur drápari?

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Já, það er einmitt stóra spurningin, sem við fáum vonandi svar við í næstu bók, frekar en þar næstu, en ég tel víst að við fáum a.m.k. svar við henni.

Re: OotP

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Lol, nei, reyndar ekki svo, hef bara lesið fjórðu bókina þrisvar held, en ég get haft ágætt minni fyrir smáatriðum ef svo ber undir og ég hef velt þessu töluvert fyrir mér.

Re: Sjálfviljugur drápari?

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Það hefur komið fram að hann hafi verið hluti af gengi í skóla, sem gekk næstum allt í lið með Voldemort, það hefur líka komið fram að hann hafi sýnt myrku öflunum mikinn áhuga í skóla, svo að ég er eiginlega ekki svo hissa á því að hann skyldi hafa gengið til liðs við Voldemort.

Re: Flugferð Hedwigs

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Hvað meinarðu? Þessi saga tengist ekkert frekar fimmtu bókinni heldur en hinum… Hún skemmir ekkert fyrir þeim sem hafa ekki lesið fimmtu bókina.

Re: Galli á Harry Potter: Chamber of secrets

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Tjah, þannig skildi ég þig allavega, “En ég tók eftir að Vala Væluskjóða var með gleraugu og líka Harry Potter en hann dó samt ekki”.

Re: Cornelius Fudge

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Nahh, ég held ekki að það hafi verið eina ástæðan, ég býst við að Fudge hafi þegar vitað að Snape væri fyrrum drápari.

Re: Penelope Clearwater

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Já er það? Ég var búinn að gleyma því, einmitt það sem mig vantaði að vita.

Re: Sjálfviljugur drápari?

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Einmitt, það sem ég var að segja, það var bara einhver að halda því fram á einhverjum pósti hérna fyrir nokkru

Re: Umfjöllun um Harry Potter og eldbikarinn

í Bækur fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég er alveg sammála þér Treehugger, en það verður annar leikstjóri sem leikstýrir þriðju myndinni svo að það er möguleiki að hún verði ögn skárri.

Re: Flugferð Hedwigs

í Harry Potter fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Hah, snilld, gaman að pæla í hvernig það er að vera ugla. En The Burrow er Hreysið á íslensku og Privet Drive Runnaflöt. Flottur texti og ágætar hugmyndir margar hverjar, en ég efast samt dálítið um að Hedwig fari að taka áhættuna á að láta barna sig, og ég á dálítið erfitt með að sjá hana fyrir mér blindfulla, lol.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok