Hæ…ég er í ferlegum vandræðum…getur einhver hjálpað mér??

Ég er að lesa Order of the Phoenix núna og það er orðið frekar langt síðan ég las Eldbikarinn og ég var svo vitlaus að rifja hana ekki upp áður en ég byrjaði á þessarri. Nú er ég að komast að því að ég er búin að gleyma alveg heilum helling, ég hef frekar lítinn tíma til að fara að rifja upp hina bókina (auk þess sem ég er með Order of the Phoenix í láni á bókasafninu og get ekki verið með hana lengi).

Er einhver til í að hjálpa mér pínu og segja mér kannski frá í stuttu máli hvernig síðasta bók endaði, mig rámar eitthvað pínu í það en er ekki alveg viss. Hverjir/hvað eru Death Eaters? Hvernig kom Voldemort og hvernig fór þetta allt saman. Hvað með Lucius Malfoy?

Ekki skamma mig…ég hef því miður bara ekki tíma til að lesa hina bókina aftur og svo er ég gleymin í þokkabót… :)

Bestu kveðjur til ykkar allra.
I´m a daydreamer and a daydream believer