Því miður fær maður engu ráðið um hvar líkaminn brennir fitunni, þeir sem segja að ef þú vilt grennast á maganum sé svarið að gera magaæfingar hafa rangt fyrir sér. Það eina sem þú getur gert er að borða hollt og æfa og þetta jafnast yfirleitt út á endanum þó að sumir hafi einfaldlega þá líkamsgerð að hún brennir illa fitu til dæmis á hliðum, rassi eða lærum. Þetta sést hvað best á “perulaga” þar sem fitan safnast á rass og læri og þegar þær grennast byrja þær alltaf á að grennast fyrir ofan...
Ég bjó nú úti í Bandaríkjunum í 7 ár en er samt að læra heilan helling af enskunni í MR, þó ég fylgi hinum! Þarf reyndar að gera auka en mér fer miklu meira fram í ensku heldur en t.d. dönsku hehe! Skil ekki hvernig fólk nennir að flýta sér gegnum menntó og taka þetta fjarnám, ég myndi ekki vilja hafa misst af 3.bekk í MR og stytta eitthvað þennan menntaskólatíma!
Hahahah það er svo öll íslenska þjóðin núna að nauðga kosningatakkanum á síðunni síðan hún var sett í moggann… en hann stendur sig samt frábærlega! var reyndar næstum búinn að deyja þegar gæjinn var að eyðileggja runaway train… fkn besta lag í heimi venjulega!
Jesús hann er sko BARA fallegur! Ég grét eins og ég veit ekki hvað yfir þessum ghost whisperer þætti bara því hann var þarna hehe… og ég er venjulega ekki mikið í því að gráta yfir sjónvarpinu! Prison break eru frábærir þættir, hlakka til að sjá næstu seríu, vonandi kemur stöð2 með hana strax og hún kemur út í BNA
Ég er komin inn í MR líka!!! var reyndar með 9.6 í meðaleinkunn á samræmdu þannig var frekar viss en ég fékk líka nett sjokk þarna í fyrstu setningunni!
ég hef oft velt því fyrir mér hvernig fólk getur vitað þetta, lögun vetrarbrautarinnar and so on og fengið myndir af henni og alles! t.d. í störnufræðibókinni minni í fyrra var afar spes mynd af “vetrarbrautinni okkar” og ég var bara að pæla hver hafi tekið þessa mynd í bókinni! Bara pæling.. en þetta er ótrúlega áhugavert
roykeane ein af megin ástæðunum bara til að leiðrétta… allavega reykingarnar voru ekki að hjálpa og það er ekki spurning að loftið hefði verið miklum mun betra án þeirra
ég heyrði þetta frá einhverjum kennara en annars tók ég ekki samfélagsfr prófið og hef heldur ekki fengið formlegt einkunnaspjald heldur bara svona lítinn miða með einkunnunum…
ég hlusta á þá því þeir eru frábær hljómsveit og tónleikarnir í fyrra voru hrein snilld. Það er bara mikil vonbrigði að þeir hafi ekki sent frá sér almennilegt lag síðan S&M diskurinn kom út á sínum tíma sem er slappt. en það er af nógu að taka í gömlum og góðum lögum
Ég kvíði ekki það mikið fyrir, mér fannst mér ganga ágætlega í þessum prófum! annars er ég týpan sem er geðveikt stressuð fyrir prófin en öll afslöppuð eftir þau
Þið getið farið inná http://www.thewb.com/Shows/Show/0,7353,||1490,00.html og þar er hægt að sjá umfjöllun um alla þættina sem eru komnir út í BNA og horft á trailerana ef þið hafið áhuga á smá spoilerum!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..