Ég var bara að velta fyrir mér hvort reykingar yrðu leyfðar á Iron Maiden tónleikunum í kvöld eins og var leyft á Metallica í fyrra… Mér fannst það ömurlegt, maður var að drepast út af reyknum og hann var ein af megin ástæðunum fyrir því að það var að líða yfir fólk þarna. Mér finnst persónulega að það ætti bara ekki að leyfa reykingar í Egilshöllinni…