Leiðarljós, þátturinn atarna, er án vafa, án alls nokkurs lifandi vafa, Lééééééélegasti þáttur sem ég hef séð. Ég hef séð betri leik í grunnskólaleikritum. Það er svona álíka mikið að gerast í þessum þáttum og í hausnum á George runna. Þeir eru illa teknir, gerðir, leikstýrðir, hannaðir og leiknir og ef eitthvað er ætti að flengja þann sem gerði þá duglega.