Eins og fram kom í svarinu frá mér er ástæðan fyrir því að filmur eru ekki leyfðar einungis öryggisatriði. Það er ekki unnt að tryggja hvert ljósgegnumstreymið er þegar um filmu er að ræða, sem er hins vegar hægt í gerðarviðurkenningunni. Þar fyrir utan hefur þetta áhrif á ljósbrot og burðarþol, skv. m.a. danskri rannsókn, eins og ég nefndi. Hvað varðar dóminn frá héraðsdómi Vesturlands í málinu, sem þú vísar til, þá var maðurinn sýknaður á lagatæknilegum grunni, hann var einungis ákærður...