Ég er nýr notandi og er að reyna að átta mig á þessu öllu saman, en fyrstu viðbrögð við huga.is er mikil aðdáun. Merkilegt finnst mér þó að ekki finnist áhugamálið lögfræði, hvorki undir vísindi og fræði, tilveru né (jafnvel) lífstíl. Ég geri ráð fyrir að margir hafi áhuga á að nota vefinn í þeim tilgangi að afla upplýsinga og/eða skiptast á skoðunum um lögfræðileg málefni. Varpa þessu fram til íhugunar.