Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

riemann
riemann Notandi frá fornöld 0 stig

Re: Mótsögn!

í Heimspeki fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það sem hann/hún er að meina er i sem er grunntala tvinntalnanna. Eini gallinn er sá að í raun er (-1)^0.5 ekki til þó svo að i^2=-1. Þ.e. (-1)^0.5 er í raun bæði i og -i.

Re: Bókaormurinn

í Bækur fyrir 23 árum
Fín grein. Ef ég ætti að nefna einhverjar bækur sem hafa haft meiri áhrif á mig en aðrar þá er það sem mér dettur í hug svona strax, 100 ára einsemd sem er algjört meistarastykki, og svo bókin um veginn sem var á náttborðinu hjá mér samfleitt í nokkur ár. Það eru ýmsar aðrar eins og Birtingur eftir Voltaire sem er algjör snilld og Glæpur og refsing. En sú bók sem sennilega hefur haft hvað mest áhrif á mig er Söngvar förumannsins eftir Stefán frá Hvítadal. Það er eitthvað það...

Re: Anarkismi -

í Stjórnmál fyrir 23 árum
Alveg frábær grein að mörgu leiti hjá þér. þó finnst mér svolítið eins og allur vinstri vængur anarkismans sé grautaður saman svolítið hjá þér. Það eru ekki allir vinstri anarkistar eins miklir náttúrusinnar og kemur fram, þ.e. það eru ekki allir sem vilja stefna að einföldum pre-iðnbyltingar landbúnaðarsamfélögum. Og eitt enn sem mér fannst vanta var umfjöllun um hægri væng anarkismans svokallaðann anarcho-capitalisma sem menn eins og Milton Friedman og David Friedman og fleiri hafa verið...

Re: Er vit í frumsendum stærðfræðinnar?

í Heimspeki fyrir 23 árum
Popcorn: auðvitað stendur stærðfræðin enn fyrir sínu, en það er hins vega áhugavert fyrir þau okkar sem hafa áhuga á formlegri og röklegri uppbyggingu stærðfræðinnar og anarra rökkerfa, að Gödel skuli hafa sannað þetta. En það er munur að mínu mati á setningu Gödels og venjulegum þversögnum þar sem setning Gödels segir okkur eitthvað um ákveðinn galla í kerfinu sjálfu þ.e. í infrastrúktúrnum. kveðja Riemann

Re: Jafnrétti

í Heimspeki fyrir 23 árum
Það er margt sem bendir til þess að flestir sem hafa verið að ræða um þessi mál hér viti um það bil ekki neitt um það hvað þeir eru að tala. Í fyrsta lagi koma alltaf upp klassísk viðhorf þeirra sem eru fastir í auðmagnsviðhorfum um að jafnrétti þurfi alltaf að vera vinnuletjandi, það er ekki rétt því fólk vinnur út frá ýmsum öðrum forsendum en bara eiginhagsmunum, til dæmis út frá ábyrgðartilfinningu gagnvart þjóþfélagi og þegnum. Svo er annað, sumir hér vilja líkja bannsetta kommúnismanum...

Re: Er vit í frumsendum stærðfræðinnar?

í Heimspeki fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þetta er reyndar ekki alveg rétt farið með Gödel, þrátt fyrir að þetta sé nærri lagi. Hann sagði að ekkert kerfi byggt á endanlega mörgum frumsendum sem væri nógu stórt til að innihalda arithmetic, þ.e. þennan venjulega reikning, gæti staðið sér án þess að upp kæmu um síðir setningar sem væru sannar en ekki sannanlegar út frá þessum frumsendum eða setningar sem væru í mótsögn en þó báðar sannanlegar út frá frumsetningum. Mér að vitandi eru bara þekktar setningar sem fjalla um óendanleikann...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok