Nei, eins og það hefur komið áður fram þá er ekki mikil eftirspurn af áli í heiminum, hún á ekki eftir að aukast mikið. Við þurfum ekki meira streymi af ál þótt að við eigum alltaf eftir að þurfa að framleiða ál.
Flugvélar hefðu ekki verið komnar svona fljótt ef heimstyrjaldirnar og stríðin hefðu ekki komið. Þjóðir kepptust upp á “líf og dauða” um forskot á óvininn og þessvegna þróaðist allt svona ótrúlega hratt á stuttum tíma. Bílar, flugvélar, aðrar samgöngur og raftækni. Td. tölvurnar áttu fyrst að vera notaðar í hernað.
Og á þessvegna að framleiða helling af því útaf því að það er ekki helvítis offramboð? Ég er orðinn ótrúlega pirraður á tregu svörum þínum sem ég er búinn að lesa hér og sérstaklega þessu.
Þú ert að tala um það sem hefði verið, þetta álver er ekki að finna upp flugvélar. “og ef ekkert ál hefði verið til væru til flugvélar núna?” -Þá væru þeir sennilega búnir að flýta sér að búa til flugvélar úr trefjaplasti. Hvar væri heimurinn tæknilega séð ef heimstyrjaldirnar hefðu ekki komið? Bílar hefðu ekki verið eins þróaðir, ekki heldur flugvélar og skip væru ekki eins góð.
Já ég ruglaðist alveg :) Fannst eins og þú hafir sagt er einhver í 1.A bekk í MS að halda party. Fannst skrítið að þú mundir ekki vita að það væri party í bekknum þínum :) Vissi ekki að þú værir að meina allann fyrsta bekk.
“lengst uppá hálendi og aðeins hægt að komast þangað með þyrlu eða stórum jeppa… veistu ég held að fólk hafi ekki verið að spá neitt mikið í þessum sandhaug og lækjarsprænu.” -Ég ætla ekki að eyða tíma mínum í svona rugl hjá manni sem veit ekkert hvað hann er að tala um. Það er alveg hægt að komast þangað. Hefuru séð gljúfrið? Það er án efa flottasti staður sem ég hef séð á Íslandi. Ég er ekki með né á móti þessari stíflu. En það hefur ekki neinn komið með nógu góð rök fyrir því að við eigum...
“Heldur þú að Portúgalir vilji vinna í ógeðslega veðrinu þarna?” -Þú ert svo að skíta á þig í þessum umræðum. Já portúgalarnir eru ánægðir með að vinna þarna, og ég veit það fyrir víst því ég hef talað við þá.
“Tilvitnun: Alcoa framleiða parta í Tomahawk eldflaugarnar Ef þú ert að reyna að halda því fram að Tomahawk eldflaugarnar séu að drepa einhverja saklausa borgara í Írak þá er það alrangt hjá þér því að BGM-109 Tomahawk er aðeins notuð af sjóherum og skotið neðansjávar þannig að ég stórefa það.” -Það er eins og það sé miklu betra að þeim sé skotið neðarsjávar. Merkilegt. “F16 orustuþotur eru framleiddar úr áli frá Alcoa Herir meiga líka eiga flugvélar…” -Þú veist í hvaða tilgangi þeir nota...
Og afhverju segiru það? Við þurfum ekki meira ál, frekar öfugt, við þurfum minna og minna ál. Og þessa stíflu? Tilhvers? Við græðum ekki mikið á þessu, það eru auk þess aðallega útlendingar sem vinna þarna og stíflan verður gjörsamlega ónothæf eftir nokkra áratugi.
Ég er búinn að fara í 3 stór heimahúsaparty á nokkuð stuttum tíma þannig að ef þetta er lítið þá veit ég ekki hvað :) Svo er maður að fara að halda eitt fyrir bekkjarfélagana og vini þeirra og mína.
Hvernig væri þá að hætta að ráða alla þessa pólverja í vinnu? Við fengum verkamenn um daginn og það voru 3 af 4 sem komu ólærðir útlendingar. í vinnunni minni eru 2 innflytjendur og við erum 5 sem vinna þarna.
Architecture In helsinki (happy popptónlist), Ratatat (mjög töff intrumental-electronic tónlist), Arcade Fire, Postal Service, Hot Hot Heat, Feeder, Badly Drawn Boy ofl.
“Margir spurja af hverju það er nauðsynlegt að við Íslendingar séum að framleiða allt þetta ál. Ég spyr þá á móti hvort þeir gætu lifað án alls þess sem álið er notað í t.d flugvélar, áldósir, geisladiskar og margt fleira?” -Þetta eru einu “rökin” sem þú komst með að það yrði að byggja þetta. Hitt var bara tal um kjarnorkuver í Bandaríkjunum sem enginn var að tala um.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..