Komið sæl, ég vil endilega fá að vita skoðun ykkar á einu máli sem er að gera allt vitlaust í heiminum = Marijuanna

Ég ætla að byrja á því að segja ykkur frá því hvað Marijuanna er. Það er heilræktuð planta sem fer undir nafnið Cannabis Sativa, þegar fólk reykir þetta þá tekur það plöntuna sjálfa, bútar hana og lætur hana þorna. Síðan er hún reykt og ástæðan fyrir því af hverju fólk verður skakkt er vegna þess að þegar efnin í plöntunni fara í líkamann þá finnur maður fyrir breytingu sem kemur af stað ofsasælu.

Ef það er eitt sem ég hef tekið eftir þá er það að það er rosalegur munur á fólki heima og í Bandaríkjunum. Á Íslandi virðist fólk halda að þetta sé það banvænasta í heimi og allir sem rekja þetta deyja. Ég er ekki að segja að þetta sé endilega hollt, en ekki drekka þig síðan pissfullann og halda að það sé eitthvað betra fyrir þig. Sjálfur hef ég prufað bæði og ég get sagt að ég er miklu líklegri til að gera eitthvað heimskulegt ef ég er fullur heldur en ef ég er skakkur, þegar ég er skakkur hef ég FULLA meðvitund og það eina sem ég finn, er sæla. Mér finnst voða gaman að bera saman partýum þar sem er marijuanna og er áfengi. Ég hef ALDREI heyrt um neinn sem skaðar einhverjum mein eða neitt þannig undir áhrifum marijuanna. Hins vegar eins og við þekkjum á Íslandi má varla kalla neitt útihátið með áfengi nema það sé einhver annaðhvort nauðgaður, laminn eða drepinn.

Nú ætla ég að tala um heilsuskaða á þessu bæði. Þegar plantan er reykt of fer inn í líkamann þá breytast stefnur heilans sem nefnast “endorphins”, þetta sem við fáum þegar við ownum í cs eða fáum útborgað. Og það er aðeins i smátíma, fer auðvitað eftir hvað maður reykir mikið. Þegar fólk tekur inn áfengi, situr áfengið í líkamanum og breytir stefnu heilans þannig að maður sér ekki eins vel, og hefur litla stjórn á sjálfum sér. Ef maður drekkur mikið er alltaf hætta á að maður æli eða drepist, sem er ekki mjög gott. Áfengi er helsta orsök dauða meðal allra inntökuefna. Samkvæmt heilsustofnun Bandaríkjanna geta þeir ekki nefnt eina dauðasök sem var af völdum marijuanna.

Ástæðan fyrir því að þetta er ólöglegt, allaveganna hér, er vegna þess að ríkisstjórnin fær fleiri milljónir á því að bösta fólk sem er með þetta. Og ef því væri snúið að það væri fyritæki sem framleiddu marijuanna og áfengi væri þetta ólöglega dót sem fólk er sett í fangelsi þá myndi hugarfarið ekkert vera öðruvísi. Fólk á líka stundum til að rugla saman marijuanna við önnur fíkniefni, svosem hass, sem er allt annað þó að það sé komið af sömu plöntunni.

Ég vil ljúka þessu með því að segja….
LEGALIZE IT !!!:D:D:D:D hehe
thank you very nice.
“If you have a gun, you can rob a bank. If you have a bank, you can rob everyone”