Neighbours 24.ágúst 2006 Vona að ég megi gera 2 greinar á svona stuttum tíma…:)

Þið vitið að Paul, Izzy, Elle, Dylan, Sky, Connor, Serena, Liljana, David, Susan og Alex eru að fara í flugvél útaf 20 ára afmæli Lassiter, hóteli Pauls.


Þátturinn byrjaði þannig að það var einhver sem setti sprengju í flugvélina.


Serena spurði Connor hvort hann vildi koma með í flugvélina, hann sagðist hugsa málið. Síðan kom hann þegar Lil, David, Sky og Serena voru að verða tilbúin og Harold kvaddi þau. Hann ákvað að fara með.


Dylan ætlaði ekki að fara fyrst en kom síðan á flugvöllinn. Sá sem vinnur á bensínstöðinni bar kennsl á Dylan og sagði að hann væri sá sem rændi stöðinni. Síðan kom Stuart og Steiger til Stingray og Toadie var löfræðingur Stingray. Stingray sagði Toadie allt sem gerðist.


Löggan kom á flugvöllinn en of seint…. Síðan í flugvélinni þá sagði Paul Dylan að löggan myndi bíða eftir honum þegar flugvélin lenti.


Izzy fann bréf í flugvélinni til hennar og hélt að Paul hefði sent það en þetta stóð framan á: “My one and only”. Síðan opnaði hún það og það stóð: “Things about your life and everything you've done”. Það er örugglega einhver sem hatar Izzy sem setti sprengjuna þarna. Síðan í endanum var sýnt sprengjan og mynd af Paul og Izzy.