Það er alltof mikið um að hópar séu að lemja einn einstakling. Ég lenti í þessu í 9. bekk, en þá voru einhverjir helvítis dópistar sem ætluðu að lemja mig, en sem betur fer varð ekkert úr þessu þar sem ég náði að komast undan. Þeir voru auk þess með hafnaboltakylfur og nokkuð eldri. Hvað er málið? Það þarf að hækka refsingar í svona málum, það er ekki hægt að segja að það skipti engu máli útaf því að Bandaríkjamenn eru með háar refsingar og þar er há ofbeldistíðni. Það er ekki hægt að bera...
Afhverju ekki að kenna foreldrunum um það? Afhverju eiga litlir krakkar með lítinn skilning á lífinu að geta farið á internetið án þess að neinn sé að fylgjast með þeim? Ég veit persónulega ekki um neina foreldra sem leyfir ungu barni að vaða á netinu eins og ekkert sé.
Kannabis er ekki mikið ávanabindandi, það þarf að reykja það frekar oft í viku til að verða háður. Áfengi er skaðlegra og meira ávanabindandi. Flest allt er gott í hófi, þar á meðal áfengi og kannabis.
“finn aldrei mun sjálfur” -Afhverju ertu þá að eyða pening í þetta? Þótt að þessi vinur þinn er ekki að bæta sig jafn mikið og þú þá getur það þýtt svo margt, td. að hann borði aðeins minna, þetta æfingarprógram henti þér betur en honum, að hann þurfi minni eða meiri hvíld og einfaldlega það að þú ert með aðeins meira testósterón í líkamanum eða borðar meiri hitaeiningar.
Fólk er oft fyrst með einhverjum á herbergi og á 2-3 ári vill það oft skipta. Maður verður þreyttur á því að vera ALLTAF með besta vini sínum, og sérstaklega ef hann er með manni í bekk eða skóla. Það er gott að hafa félagsskap, en það er líka gott að hafa næði. Ef maður er einn á herbergi þá fer maður einfaldlega í næsta herbergi ef maður vill félagsskap. En maður getur ekki rekið herbergisfélagann út þegar maður vill næði.
Borða, borða og borða. Fara á matarvefurinn.is og skrá allt sem maður borðar og láta reinka út hvað maður borðar mikið af próteinum og hitaeiningum. Þeir sem borða nóg og hollt þurfa ekki að hafa áhyggjur af próteinum, aðallega hitaeiningum. Svo er að finna sér gott æfingarplan fara eftir því og gera 6-8 reps, hvíla nóg, drekka nóg vatn ofl.
Finnst þér gears of war fjölbreyttur? Alltaf sama rútínan, fara í skjól, drepa 7 óvini, rusha aftur í skjól, drepa aðra óvini, fara aftur í skjól, drepa nokkra í viðbót og allt alveg eins.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..