Staðreyndin er sú að fyrst var framleiddur þessi pony (eins og flat6 á ;) ) og það var rusl og það er staðreynd, sá bíll var alltaf bilandi og í klessu en svo kom Accent-inn og hann batnaði með árunum og ég held að hann sé í góðu lagi, annars var til sölu í dag Accent '98 í fréttablaðinu ekinn 58 þus á 190 þus. Fordómarnir á Hounday byrjuðu á þessum Pony og Accentinn bilaði jú bara eins og aðrir bílar en þessir nýlegur eru fínir :Þ Mín skoðun
Ég er núna búinn að hella heinsiefni í bensínið og í blöndunginn ;) Uff það er nú meira helvítis efnið, ekkert sérstakt að anda þessu að sér :S Takk fyri
loftsían er í góðu standi, ég keypti núna áðan svona fuel system cleaner sem á víst að gera kraftaverk. ég er búinn að blanda því við bensínið, svo er kannski ég blandi því í blöndunginn og brunahólfin!
Eitt enn hann hefur höktað á stað! en það er ekki oft en kemur fyrir það er á þeim tíma sem gangtruflanirnar eru! Mér þykir líklegast að þetta sé bensíntruflanir! Vantar hjálp takk fyrir :D
menn Segja spoilerkitt, að segja spoilerkÍtti er soldið ruglað. svo væri kannski hægt að segja kItt allan hringin en ekki kÍtti! svona hefur þetta bara þróast ;)
Ég er ekki alveg að skilja þig, ég sé hvergi bjöllu! Ég sé Porsche 911 bláan og er hann bara nokku flottur þótt það væri ekki vitlaust að breyta til, setja annan Porsche ;)
Já takk fyrir þetta, ég held að ég máti þetta og merki og taki svo hníf og skeri út stærri hring og skrúfa þá svo fasta við! Svo get ég sett hlíf fyrir sem fylgdi með svo þetta sé nokku snyrtilegt! Held að það virki alveg
Það sem þú varst að lýsa (auto cross) heitir AutoX og þar eru braut gerð úr keilum! Hún höfð þannig oftast (allarvega hér) að það er ekki hægt að fara mjög hratt heldur er bara fullt af beygjum og svo endar brautin á því að þú átt að stoppa á endalínu. Eina skilyrðið held ég að sé að hafa hjálm! Annars er hægt fyrir marga að splæsa í hjálm saman því aðeins einn fer brautina í einu. ég hef aldrei kept í þessu, bara horft á en það á vonandi eftir að breytast :Þ Ég veit ekki hvernig þetta er...
Afhverju viltu taka það af? Oft í hægagangi með svona sjálfvirkt innsog virkar oft að þenja hann pinku til að taka það af…bara upp í 3þus rpm. eða það virkar allarvega hjá mér…
já ég er sammála þér, þetta er varla kappakstur lengur, það er allt bannað… :( Aftur á móti fynnst mér rally og vörubílakappakstur (trailer) miklu skemmtilegri, þar er þetta alvöru klesst á og ýtt og gaman…
Já já það er hægt að fá svona í bilanaust, kosta mynnir mig frá 1500 ca til 2600 og svo er hægt að fá svona í bílabúð Benna líka á 2000 kall. mér þykir þessi cover sem eru í boði frekar ljót (flest) en þú getur kikkað á þetta…
ekki í umferð samt ;) Það sem tekur mestan tímann er að læra á umferðina að fylgjast með henni! Að keyra bílinn og stjórna honum kemur auðvitað bara með æfingunni.
vantar ekki bara vökva á vökvastýrið? Allarvega þetta með stefnuljósið er bara vegna þess að ein peran er sprungin, þá fer meiri staumur í allar hinar perurnar með þessum afleiðingum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..