Iðnskólinn kennir þetta. Ekki láta neitt stoppa þig að læra það sem þig langar. En þar sem þetta flokkast sem iðnnám þá þarftu að fara á samning hjá ljósmyndara sem mér skilst að sé ekki auðvelt. Skoðaðu þau mál aðeins áður en þú dembir þér í fullt nám í einhverju sem þú getur svo kannski ekki klárað vegna þess að þig vantar samning.
Þú mátt vera helvíti ánægður með þessa vél. Þetta er þrusu vél og á vonandi eftir að gagnast þér vel. Það skiptir engu hvort vélin er 6-7 ára gömul, það er augað fyrir myndefni sem skiptir öllu máli og þá meina ég ÖLLU. Ég hitti mann um daginn sem er atvinnuljósmyndari og tekur mikið af myndum í tímarit ofl og hann er ný búinn að fá sér nýja vél. Áður var hann með 20D sem hann keypti nýja fyrir sennilega 5-6 árum og hefur skilað honum fullt af flottum myndum. Eina ástæðan fyrir skiptunum var...
Flest stéttarfélög greiða fyrir x krónur fyrir tíma hjá sjúkraþjálfara. Mitt stéttarfélag greiddi sama verð fyrir tíma hjá kírópraktor. Ég er sammála því að það eru margir sem bjóða lækningar á ótrúlegustu hlutum með ótrúlegustu aðferðum. Ég hafði ekki mikla trú á kírópraktor þegar ég gekk þar skakkur inn. Ég gekk hinsvega beinn í baki út. Læknir sagði mér að ef að kírópraktorinn væri með MD gráðu þá væri hægt að treysta honum til að gera hlutina rétt. öðrum ekki.
Get ekki sagt að þessu mynd sé að heilla mig. Skökk, léleg lýsing, lélegur focus og bara óspennandi mynd í alla staði. Haltu áfram að taka myndir, það er eina leiðin til að verða bestur.
Ef það væri til forrit sem tækí myndir með lítillri upplausn og stækkaði þær þá væri alveg óþarfi að vera með myndavélar sem taka 12mp myndir og óþarfi að vera með 8gb minniskort. Það er ekki hægt að gera eins og í bíó að “unscrambla” myndir sem er búið að zomma inná til að sjá bílnúmer. Sorrý
Byrjaðu á að lesa manualinn sem fylgdi vélinni. Hann segir þér ansi margt sem þú þarft að vita um ekki bara vélina sjálfa heldu líka almennt um ljósmyndun.
Þú átt að fá frían tíma með þjálfara í sal þegar þú kaupir kort. Síðan geturðu örugglega fengið þjálfara til að útbúa matar og þjálfunaráætlun fyrir þig. Getur líka keypt 1 viku til að prófa. Hringdu bara í World Class og spurðu að þessu.
Hvernig vél varstu að hugsa um að fá þér og til hvers ætlarðu að nota hana (hvernig ljósmyndun) ef það er partý og fjölskyldumyndir þá er t.d ixus fínt vél. Ef þú ert að tala um SLR vél (svona stóra með linsu sem hægt að taka af) þá myndi ég benda þér á að fá þér einhverja notaða vél. Hægt að fá þær á fínu verði með fínum linsum. Bendi þér á að kíkja á ljósmyndakeppni.is þar má finna vélar til sölu. Bendi þér líka á að leita að þráðum þar um hvaða vélar menn mæla með fyrir byrjanda. Canon...
Ef þú myndir ekki lyfta eins og þú segist gera þá myndir þú líklega ekki brenna svona miklu á hlaupamánuðinum. Lyftingar eru án efa bestu æfingar sem hægt er að gera til að viðhalda vöðva og stoðkerfi likamans og viðhalda góðri heilsu. Það að segja að þetta komi bara lyftingamönnum er ekki alveg rétt þó að auðvitað noti þeir það sem afsökun til að hreyfa sig minna en þeir ættu. Endalaus hlaup og brennsla er ekki varanleg lausn á offitu (lélegri heilsu) frekar en endalausar endurtekningar með...
ég rakst á þetta á ljosmyndavorur.is http://www.ljosmyndavorur.is/images/stories/pdf/digicam_beginners.pdf og þetta er víst “pentax jósmyndanámskeið” Hvað sem það er. http://www.digital.pentax.co.jp/en/special/digiichi/
Valt þessi bíll ekki í fyrra? Sá örugglega myndir af því á 4x4 einhverntíman. En skiptir ekki máli. Flottur bíll og ef mig minnir þá er þetta bensínbíll.
Prófaðu að hafa samband við eggjabúin og athugaðu hvort þeir selji e-ð af þessu í verslanir og þá hvað verslanir. Ég veit að bakarí og þeir sem nota mikið af eggjum (rauðum og hvítum) geta fengið þetta í sitthvoru lagi. Ekki að það hjálpi neitt en þá er hægt að kaupa hvítuna í litlum plastílátum og það sama með rauðuna.
Nei það er búið að leggja niður allar keppnir á Huga. Af forsvarsmönnum Huga er það talið ýta undir leiðinlegan móral og einelti og var því ákveðið að banna allar keppnir og sjálfstæðan hugsunarhátt. Ef þú trúðir þessu þá ertu það sem er kallað AUÐTRÚA.
Þá er nú líklegt að það sé kominn sandur á milli og vélin geti ekki skotið linsunni út. Ef það er ekki það þá getur verið að linsan eða vélin hafi orðið fyrir einhverju hnjaski sem velur þessu.
Þetta finnst mér ótrúlegt. Á 7 tíma fjallgöngu tók ég um 6500 kkal. Eftir u.þ.b 40mín á hlauðabretti eða 50 mín spinnig tíma hef ég mest náð um 600kkal. ÉG held að þú sért að mæla þetta e-ð vitlaust.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..