Nú er ég alvarlega fjúríus, þannig er mál með vexti að mig vantaði miða á Hætta! tónleikana sem eru að byrja núna, svo ég fór á huga í morgun og gáði hvort einhver væri að selja miða og jújú, þarna eru tveir að selja. Hafði samband við annan þeirra(huganotandann muu) og við komumst að samkomulagi um að ég myndi fá miðann og hún myndi sendast með hann til mín klukkan fjögur. Klukkan varð fjögur og ekkert gerðist, og ekkert hefur heyrst frá henni og nú eru 5 mínútur í tónleikana. Helvítis muu,...