Ég var að leiða hugann að því hvað góðar hljómsveitir geta gert léleg lög.

Bítlarnir hafa gert eitthvað um 200 lög og það eru svona 190 þeirra frábær, en guð minn almáttugur fara í taugarnar á mér. Til dæmis 'Baby you're a rich man', ‘Sgt Peppers lonely hearts club band’ og ‘Drive my car’.
-
Ég veit nú ekki hver gerði 'I shot the sheriff' upprunalega, en vá hvað þetta er hroðalegt lag. Á það í nokkrum útgáfum, hver annarri verri.

Það sem er þess valdandi að London Calling platan með The Clash er ekki fullkomin, er án efa lagið Jimmy Jazz, boooring drasl sem hefði alveg mátt missa sín.

En meistari David Bowie á örugglega met í lögum sem geta flokkast undir Vond lög með góðum böndum. Eins og þessi nýju teknólög sem hann er að gera, skilur þau eitthver?

Kentucky Woman með Deep purple er annað svona leiðindalag, tóku það á tónleikunum hérna á Íslandi minnir mig. Og talandi um bönd sem ég hef séð á tónleikum, þá er lagið 'Bring Your Daughter To The Slaughter' með Iron Maiden algjör skömm fyrir þetta band. Fyrst þegar ég heyrði þetta lag hélt ég að þetta væri bara léleg Maiden eftirherma, en þetta var greinilega bara lélegt maiden lag. Og meiri Íslandsvinir, Muse lagið 'Falling down' er nú bara væll í fimm mínútur og lítið stuð. Svipað því lagi er síðan lagið 'Húsin Mjakast Upp' með Spilverkinu,lítið meistarastykki þar á ferðinni.

Meistari Megas hefur ótrúlegt en satt, átt sín slæmu lög. ‘Álafossúlpan’ er t.d. 7 mínútna lag þar sem sama setningin er endurtekin allan tímann. Frekar mikið glatað lag og pirrandi.

Svo er það ofmetnasta Red hot Chili peppers lag allra tíma, nefnilega lagið Give it away. Bæði er það ógeðslega leiðinlegt og síðan held ég að viðlagið sé það mest pirrandi í víðri veröld.

Maður getur nú ekki endað svona upptalningu án þess að nefna uppáhalds hljómsveitina sína….Stone Roses. Þeim kumpánum finnst nefnilega eitthvað sniðugt að hafa eitt afturábak lag á hverri plötu(já, líka Greatest hits og þannig plötum) og þessi lög eru undantekningalaust leiðinleg og vel til þess fallin að spóla yfir. Skil ekki hvernig þeir nenna að skemma fínar plötur með svona rugli, þar sem þessi lög eru alltaf á miðri plötu, en ekki sem aukalög eða eitthvað eins og svona ‘einkalög’ eiga að vera.

Og já, ég ætla að kjósa Yellow Submarine sem versta lag allra tíma.