Nú er ég alvarlega fjúríus, þannig er mál með vexti að mig vantaði miða á Hætta! tónleikana sem eru að byrja núna, svo ég fór á huga í morgun og gáði hvort einhver væri að selja miða og jújú, þarna eru tveir að selja. Hafði samband við annan þeirra(huganotandann muu) og við komumst að samkomulagi um að ég myndi fá miðann og hún myndi sendast með hann til mín klukkan fjögur. Klukkan varð fjögur og ekkert gerðist, og ekkert hefur heyrst frá henni og nú eru 5 mínútur í tónleikana.

Helvítis muu, ef þú vildir ekki selja mér miðann gastu bara sagt það svo ég gæti allavega reynt að redda mér öðrum miða. Ég hafði nefnilega tækifæri á öðrum miða en hef það ekki lengur og ég óska þér alls ills.

Fáviti