Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Djöfull voru ógeðslega margir...

í Leikhús fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Já, annars var það svo sem ekki söngurinn sem réð úrslistum hvort ég færi eða ekki heldur tímaleysið. Mér skilst að maður fari í söngtíma í Listaháskólanum.

Re: Týpur menntaskólanna

í Tilveran fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Vá! Já, það er ég reyndar. Hvernig fannstu það út frá svarinu mínu?

Re: Djöfull voru ógeðslega margir...

í Leikhús fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Hvenær mætirðu svo í áheyrnarprufurnar?

Re: Djöfull voru ógeðslega margir...

í Leikhús fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Ég komst að þeirri niðurstöðu að ég syng eins og gæs og fór þess vegna ekki. Þar að auki var ég á leiklistarnámskeiði MR um það leiti sem prufurnar fóru fram(ég meira að segja sá þig þar þegar ég labbaði út(eða kannski var það á mánudeginum)) Og ef ég hefði farið og komist áfram er ég ekki einu sinni viss um hvort ég hefði tíma til þess þar sem MR er mjög tímafrekur skóli.

Re: Týpur menntaskólanna

í Tilveran fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Mikið svakalega eru svörin hérna hlutdræg. Maður sér strax hvaða skóla fólk í er með því að skoða svörin þeirra.

Re: Besta íslenska kvikmyndin?

í Kvikmyndir fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Börn, Mýrin, Brúðguminn.

Re: Dauðadans - Camille Saint-Saëns

í Klassík fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Já:) Ég meinti að nú ætla ég beint á youtube, leita að laginu og hlusta…sem ég er reyndar búinn að núna. Alveg jafn fallegt og mig minnti.

Re: Mussorgsky

í Klassík fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Nótt á nornastóli/gnípu er líka frábært verk eftir hann.

Re: Dauðadans - Camille Saint-Saëns

í Klassík fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Þegar ég var yngri var þetta mitt uppáhaldstónverk. Enn þann dag í dag þykir mér það virkilega flott. Þetta er svo óhugnanlegt og ég fæ alltaf hroll í hápunkti verksins (rétt áður en verkið róast í endanum) Bætt við 11. október 2008 - 20:12 Nú er það bara beint á youtube: Danse macabre.

Re: sound of music

í Leikhús fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Já, ég þarf líka svolítið að hugsa þetta.

Re: Þjóðleikur!

í Leikhús fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Mér líst vel á ráðgjöfina og námskeiðin í Reykjavík.

Re: sound of music

í Leikhús fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Ég myndi gera það sem Hreind´si ráðleggur þér hér fyrir neðan. Mættu í prufurnar. Þú getur þá alltaf sagt nei…og þó…það hlýtur að vera hryllilega erfitt… Bætt við 7. október 2008 - 00:10 “Hreindís” átti þetta nú að vera.

Re: sound of music

í Leikhús fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Já, MR er örugglega stífasti skóli veraldar. Þú ert mjög heppin með skóla hvað þetta varðar. Kannski ég fái tækifæri einhvern tímann eftir menntaskólann…eða háskólann.

Re: sound of music

í Leikhús fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Já, ef þú ert vön að fá hlutverk í skólaleikritinu myndi ég taka þátt í því frekar, þ.e.a.s. ef valið stæði á milli þess og kórhlutverks. En ef hlutverkið í Borgarleikhúsinu væri frekar stórt þá yrði valið erfiðara. Já, ég get gert það reyndar.

Re: Uppáhaldsstefna?

í Klassík fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Ég myndi segja Klassíkin og Rómatíkin

Re: sound of music

í Leikhús fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Ég er í MR.

Re: lúðrasveitamót

í Tilveran fyrir 17 árum, 10 mánuðum
úff..það hefur komið illa út. Ég held að ég geti lofað þér því að þetta var ekki hápunktur vetrarins.

Re: sound of music

í Leikhús fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Ég held að ég verði að sleppa þessu. Ef svo skemmtilega vildi til að ég yrði valinn þyrfti ég að segja nei. Annað hvort það eða að hætta tímabundið í skóla. Og þar sem það er örugglega hræðilega erfitt að segja nei við eitthvað eins og þetta þori ég ekki að fara í prufurnar…eða..tja kannski ég fari bara samt….

Re: lúðrasveitamót

í Tilveran fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Það var víst ferlega slöpp mæting síðast skilst mér. Trompetarnir eiga að vera 5-6, Básúnurnar 3-4, hornin 3-4, klarínettin u.þ.b. 8, slagverkin 2-3, saxafónarnir 4 held ég, barítónarnir 2, túburnar 2 og loks flauturnar 2-3.

Re: lúðrasveitamót

í Tilveran fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Ég spila á trompet. Ég kom hinsvegar ekki á síðustu æfingu.

Re: lúðrasveitamót

í Tilveran fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Já,ég vona að þér muni líka vel við Svaninn. Hlakka til að sjá þig.

Re: lúðrasveitamót

í Tilveran fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Æðislegt! Spilarðu þá á flautu? Hefurðu mætt á æfingu? Hvernig fannst þér?;)

Re: lúðrasveitamót

í Tilveran fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Damn;) Ég er í Svaninum. En þú ?

Re: Einhver tekið eftir því...

í Tilveran fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Satt:(

Re: Einhver tekið eftir því...

í Tilveran fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Já, því miður. http://www.mbl.is/mm/folk/frettir/2008/09/03/talsetningargaurinn_allur/
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok