Ég er sjálfur hlaupari, en þú verður bara að fara eftir þínu áhugasviði. Ég hef aldrei æft hjólreiðar, en ég hef æft töluvert 200, 400 og 800m hlaup. Ef þú veist ekki hvernig það gengur fyrir sig, þá gengur það mikið út á “intervöl”, þ.e. hlaupa ákveðna vegalengd á ákveðnum hraða, hvíla í ákveðinn tíma, og hlaupa svo aftur, annaðhvort sömu vegalengd og þá ákveðinn fjölda af hlaupum, eða þá er vegalengdin aukin, til að taka svokallaðan pýramída (til að útskýra hvað pýramídi er þá byrjar maður...