Mér datt í hug lausn um daginn, veit ekki hversu góð hún er, en mér finnst hún þó miklu betri en að skipta keppninni í tvo hluta, sinn hvorn fyrir vestur- og austur- þjóðir. Og þú Glamrocker fullmótaðir eiginlega hugmyndina mína, með þessum “blokkum” þínum. Mín hugmynd er allavega sú að keppnisfyrirkomulagið sem slíkt sé eins, nema að þjóðunum er skipt niður í 4 hópa, sem væru þá nokkurnveginn sömu hópar og “blokkirnar” sem þú komst með í greininni. Eina breytingin yrði í rauninni sú að þú...