Ok! Ég er nýbúin að átta mig á hvað Friends eru æðislegir (já, ég veit hvað ég er sein að því, gaf þeim bara aldrei séns af því að fyrsti þátturinn sem ég sá var frekar leiðinlegur) og nú langar mig að eignast þetta allt saman! Ég á ekki DVD spilara þannig að gamla VHS verður víst bara að duga!

Er þetta ekki ógeðslega dýrt dæmi? Er kannski gáfulegra að kaupa sér DVD spilara og safna þessu svo í rólegheitunum? Eru ekki allar seríurnar til á DVD? Hvar gæti maður keypt þessar seríur?

Nóg af spurningum.
Kv. Peewee