Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Textar Metallica pt.1

í Rokk fyrir 24 árum
Langi ykkur til að heyra virkilega flotta texta skulið þið hlusta á Tool - Lateralus. Reflection er líklega einn besti texti sem ég hef nokkurn tíma á minni stuttu ævi heyrt!!! [partur úr því] “Its source is bright and endless She resuscitates the hopeless Without her, we are lifeless satellites drifting” Snilld ;)

Re: veðursins værukærð

í Ljóð fyrir 24 árum
Þakka þér fyrir ;) Ég er nottla ekki aaaalveg laus við þessa punkta en engu að síður ætla ég að draga verulega úr notkun þeirra ;) Hef bara allt í litlum stöfum til þess að hafa einhvern öðruvísi stíl ;þ

Re: Skjóta fyrst og banka svo

í Ljóð fyrir 24 árum
Virkilega flott og áhrifamikið ;) Myndrænt en stutt - segir samt allt sem segja þarf! kv. Danni

Re: Hrægammurinn

í Ljóð fyrir 24 árum
Jamm… ég stefni á það að verða uppadjöfull með aflitað hár, í svörtum jakkafötum dagsdaglega, keyri um á gulum sportbíl (sanseruðum), fer í ljós 4 sinnum í viku, mæti reglulega í líkamsræktina og fer svo heim í nýtískulega og bjarta íbúðina sem er tekin beint út úr “Innlit/útlit” ;þ NEI!!! Ekki alveg! Ég stefni á það að verða stórfurðulegur sálfræðingur sem gengur í brúnum kufli og blaðrar við sjálfan sig á Laugaveginum!!! Það er svona mitt look á framtíðina… eða ekki… ;þ En hver er svo sem...

Re: Hrægammurinn

í Ljóð fyrir 24 árum
Reyndar vissi ég aldrei neitt um Loka áður en ég byrjaði að læra um hann núna í 6.bekk Verzló ;þ Þannig að það er í raun ágætt að Sithy hafi útskýrt það fyrir öllum öðrum hvað eitrið og skálin merktu - og þá jafnframt tenginguna við Eddukvæðin. En… mjög flott hjá þér Sithy ;) kv. Danni

Re: A Hopeless Case

í Ljóð fyrir 24 árum
Vá… rosalega sorglegt, vel ort og boðskapurinn í því er svo sannur ;/ Ég sá bara fyrst lengdina á ljóðinu og var svona að spá í að sleppa því að lesa það en sem betur fer gerði ég það ekki ;) *knús* til þín ;) kv. Danni

Re: Sonur minn

í Ljóð fyrir 24 árum
Helvíti skondin kaldhæðni í þessu ;þ

Re: 42 mánuðir (fyrir botni Miðjarðarhafs)

í Ljóð fyrir 24 árum
Talan 42 er nottla tilgangur lífsins samkvæmt “The Hitchhiker's guide to the galaxy” (þó ég hafi ekki lesið hana), plágurnar 7 voru í biblíunni (7 í ljóðinu), höggormur (niðhöggr) í Völuspá, jörðin (og fólkið) mun falla í sæ og endurnýjast svo (samkvæmt Völuspá). Þetta ljóð er MJÖG flott og kröftugt með helling af tilvitnunum!!! Keep up the good work tmar ;) kv. pardus

Re: Visin rós

í Ljóð fyrir 24 árum
Mjög frumlegt, vel skrifað og alveg hreint gífurlega kröftugur texti ;) Meira svona frá þér!!!

Re: Tilgangur lífsins [mesta sýra sem ég hef skrifað!]

í Ljóð fyrir 24 árum
Þakka ykkur öllum fyrir álitin ;) Ég vil samt taka það fram að ég trúi ekki mikið á guð þó ég hafi mjög mikla unun af því að tala um hann og gera kannski örlítið góðlegt grín að honum ;þ Þetta “ljóð”, “smásaga”, “ritgerð” eða “sýra” var aðallega skrifað til að skemmta sjálfum mér og drepa tímann eins og HjaltiG orðaði það - enda skemmti ég mér líka konunglega við að bulla svona helvíti mikið ;þ Annars… takktakktakk fyrir að nennað lesa þetta ;) kv. pardus

Re: Tilgangur lífsins [mesta sýra sem ég hef skrifað!]

í Ljóð fyrir 24 árum
… naaaaaaaaa… bara húmor ;þ Þar sem ég hafði ekkert betra að gera en að hanga bara á netinu þá datt mér í hug að flippa aðeins á lyklaborðinu í tölvunni niðri í skóla ;) Doldið rugl en engu að síður skemmti ég mér konunglega við að skrifa þetta!!! Eru þetta ekki ágætis hugleiðingar??? ;þ kv. Danni

Re: Löngun blóðsins

í Ljóð fyrir 24 árum
Woah… þakka ykkur fyrir ;) Ég var svona að reyna að brjóta mig sjálfan aðeins upp - mér fannst það takast bara bærilega ;)

Re: Álfaþoka

í Ljóð fyrir 24 árum
Mjög flott hjá þér, dulúðlegt og smart ;) Reyndar mættirðu passa klaufastafsetningarvillur (t.d. hvergi´ (komman á eftir)) því að ljóðin þín eru það flott - engin ástæða að skemma fyrir (það truflar mig alltaf að sjá svona villur - skemmir “lookið”) kv. pardus

Re: Skyggnst á bak við grímuna... (hippaboðskapur)

í Ljóð fyrir 24 árum
Takk fyrir hrósin ;) En þessar punktalínur á undan (núna geri ég bara í byrjun erindis í stað allra lína áður) þjóna litlum tilgangi… það gæti skoðast sem einhvers konar “umhugsun”, “töf á undan” eða eitthvað - en engu að síður finnst mér þetta bara kúl ;þ Þið megið nottla hafa ykkar skoðanir um það en það er samt gaman að hafa svona “eigin stíl í uppsetningu” ;) En ok, ég leita bara að innblæstri og þá hlýtur þetta að koma ;)

Re: ágætt......en hvað svo!

í Ljóð fyrir 24 árum
Þakka ykkur fyrir ;) Reyndar hef ég gripið sjálfan mig í því að skrifa alltaf sama hlutinn overandover again! ;/ Ég hef skrifað um frelsisbaráttu einstaklinga, efasemdir um guð, ástir og fleira en núna er ég bara andlaus (eiginlega)… enda sést það kannski á því að ég hef lítið skrifað að undanförnu! En ég er að reyna að þróa með mér nýjan stíl og líklega mun þetta skána á næstunni ;) Reyndar fannst mér þetta ljóð vera í lagi - það er frekar dularfullt (frekar djúpar pælingar og ekki víst að...

Re: ...skildu ungbörnin hugsa líkt og við?

í Ljóð fyrir 24 árum, 1 mánuði
Þakka ykkur kærlega fyrir hrósin ;)

Re: Pleasantville

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 1 mánuði
Frábær kvikmynd í alla staði!!! Handritið (hugmyndin að því er snilldarlegt), leikurinn og brellurnar (sem eru kannski ekkert svakalegar - en þjóna miklum tilgangi (svart/hvítt - litur)) *****/***** (fullt hús) ;) kv. pardus

Re:

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 1 mánuði
Með “Dansar við úlfa”, “Pulp Fiction” og “Lord of the rings” skipar þessi mynd efsta sæti á kvikmyndalistanum mínum ;) SNILLD!!! kv. pardus

Re: The word on the street

í Ljóð fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Alveg virkilega frábært ljóð hjá þér elskan ;) Þú leynir greinilega á þér hvað margt varðar ;þ Góð saga, gott rím og flottur orðaforði ;)

Re: í skugga sæluvímunnar....birtist ástin........

í Ljóð fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Vá!!! Þakka þér kærlega fyrir bunnygirl ;) Ég er alveg sammála öllu þessu (þ.e.a.s. sem stendur undir ljóðinu ;þ) - en fínasta ljóð hjá þér annars! ;) TakkTakkTakkTakkTakk ;*

Re: Hrokagikkur

í Ljóð fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Þakka þér fyrir tmar ;) Boðskapur ljóðsins er nottla sá að ég er laus undan mínum eigin hroka og lít núna jafnt á allar manneskjur (eða þannig lagað… ;)) Nú til dags fer fátt meira í taugarnar á mér heldur en hroki og oflátungsháttur og persónur sem eru svo sjálfumglaðar og sjálfselskandi að þær myndu “ríða sjálfri sér ef þau gætu!” (bein tilvitnun í ljóðið “Sannir persónuleikar” sem fjallaði um svipað atriði ;) En takktakk ;) kv. Danni

Re: --Blóðför gegn Kristni--

í Ljóð fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Kristur hefur aldrei gert neitt sjálfur sem mætti teljast slæmt. Það voru aftur á móti klerkar, biskupar og aðrir kirkjunnar menn sem ráku saklausan almúgan út í blóðugar styrjaldir í nafni Jesú Krists. Það er það “slæma” sem Kristnin hefur gert okkur! Það er því ekki hægt að áfellast Kristnina sem slíka, heldur rangtúlkanir illra manna. Kristnin boðar frið, kærleika og skilning en menn misskilja stundum boðskap hennar. Þetta er svipað dæmi og með Islam. Talebanar hafa sannlega rangtúlkað...

Re: 100 bestu plötur tíunda áratugarins!

í Rokk fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Já, en Ænima, Achtung Baby og Metallica (Black Album) komu allar út á tíunda áratugnum. Ænima 1996 Achtung Baby 1991 Metallica 1990 Reyndar var Ænima mjög “underground” plata á sínum tíma og ekki þekkt hér á landi né á mörgum stöðum í heiminum… en miðað við nöfnin á þessum lista ættu þeir sem gerðu hann að hafa kannast við þessa plötu - hún þykir algjört meistaraverk! kv. pardus

Re: Naglfarið nálgast / Ragnarrökkur

í Ljóð fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Þakka þér kærlega fyrir hrósið ;) Þetta er allt saman sótt úr Snorra Eddu, Naglfarið, Miðgarðsormur (maðkurinn), æsir, Fenrisúlfur (úlfurinn), Ginnungargap og Surtur úr neðra. Svo bætti ég Superman við í djóki ;) kv. pardus

Re: 100 bestu plötur tíunda áratugarins!

í Rokk fyrir 24 árum, 2 mánuðum
HVAR Í FJANDANUM ERU TOOL OG U2 Á ÞESSUM LISTA!!!??? Það vantar sárlega: Achtung Baby (U2) Lateralus (Tool) Ænima (Tool) Black Album (Metallica) Þessi listi er nottla bölvað kjaftæði… en það er ekki hægt að sakast við TheCure, hann samdi hann ekki… heldur einhverjir nördar á tónlistarsíðu úti í heimi. Kommon, meira hasshausarugl er ekki hægt að finna en ruslið sem flæðir um á þessum lista… hvar er rokkið!!!?? kv. pardus pfffff…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok